Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin og Heiða Björk Vignisdóttir skrifa 22. október 2026 13:03 Við tölum mikið um mikilvægi þess að fólk af erlendum uppruna læri íslensku. En erum við að skapa því raunveruleg tækifæri til þess? Það er auðvelt að gera kröfur um íslenskukunnáttu, en erfiðara að tryggja að fólk hafi tíma, aðstöðu og stuðning til að læra tungumálið samhliða vinnu og fjölskyldulífi. Íslenskukunnátta er mikilvæg forsenda virkrar þátttöku í samfélaginu. Hún getur opnað leiðir að fjölbreyttari störfum, styrkt félagsleg tengsl og auðveldað fólki að nýta réttindi sín og þjónustu. En tungumál lærist ekki eingöngu í kennslustofu. Fólk þarf líka tækifæri til að nota það í daglegu lífi, í samskiptum og við raunverulegar aðstæður. Þetta á sérstaklega við um starfsfólk hjúkrunarheimila sem hefur annað móðurmál en íslensku. Þar eru samskipti ekki aðeins hluti af vinnunni heldur grundvöllur hennar. Starfsfólk þarf að geta átt samtöl við íbúa, skilið þarfir þeirra og óskir, miðlað upplýsingum til samstarfsfólks og tekið þátt í faglegu samstarfi. Við getum því ekki ætlast til þess að starfsfólk í vaktavinnu beri eitt ábyrgð á að læra íslensku utan vinnutíma. Vinnustaðir og stjórnvöld þurfa að taka virkari þátt í að skapa aðstæður þar sem tungumálanám verður eðlilegur hluti af vinnudeginum. Vinnustaðurinn sem námsumhverfi Fyrir starfsfólk í vaktavinnu getur verið erfitt að finna tíma fyrir hefðbundið íslenskunám samhliða vinnu og fjölskyldulífi. Því er mikilvægt að finna leiðir sem gera fólki kleift að efla íslenskukunnáttu sína án þess að þurfa að bæta enn einu verkefninu við annasaman dag. Ein leið er að flétta íslenskunámi inn í daglegt starf, þannig að starfsfólk fái tækifæri til að æfa sig í raunverulegum samskiptum og nýta nýja þekkingu jafnóðum í vinnunni. Til þess að þetta gangi upp þurfa stjórnendur og samstarfsfólk að taka þátt. Það skiptir líka máli að fólk fái tíma og hvatningu til að æfa sig að tala og upplifi vinnustaðinn sem öruggt umhverfi til að spyrja spurninga og gera mistök. Ávinningurinn snýst ekki aðeins um betri íslenskukunnáttu. Þegar fólk á auðveldara með að tjá sig, taka þátt í samtölum og koma sínum sjónarmiðum á framfæri styrkist líka tilfinningin fyrir því að tilheyra hópnum. Þannig getur stuðningur við íslenskunám haft jákvæð áhrif á vinnustaðinn allan með bættum samskiptum, samstarfi og líðan starfsfólks. Frá hugmynd að framkvæmd Starfstengt íslenskunám styður við markmið stjórnvalda um að efla íslenskukunnáttu og þátttöku innflytjenda á vinnumarkaði. Til að ná þeim markmiðum þarf þó að tryggja að fólk hafi raunveruleg tækifæri til að læra íslensku samhliða vinnu. Eitt dæmi um slíka nálgun er Málbrú, verkefni sem Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) hafa unnið að í samstarfi við stjórnvöld. Verkefnið byggir á norrænni fyrirmynd og sameinar stafrænt íslenskunám, stuðning mentora og tungumálaþjálfun í daglegu starfi. Hugmyndin er einföld: að nýta vinnustaðinn sjálfan sem námsumhverfi og gera íslenskunotkun að sameiginlegu verkefni starfsfólks og stjórnenda. Í fjögurra mánaða prófunarfasa Málbrúar tók 41 starfsmaður á þremur hjúkrunarheimilum þátt. Í lokakönnun sögðust 94% svarenda hafa upplifað jákvæðan árangur í íslenskunáminu. Niðurstöðurnar gefa jákvæðar vísbendingar um gagnsemi þessarar nálgunar. Sérstaða Málbrúar felst í því að íslenskunámið er tengt daglegu starfi. Starfsfólk eflir orðaforða og æfir samskipti sem það notar í vinnunni, meðal annars við íbúa og samstarfsfólk. Þannig nýtist námið í raunverulegum aðstæðum og getur aukið bæði öryggi og sjálfstraust starfsfólksins. Reynslan af Málbrú bendir til þess að starfstengt íslenskunám geti verið raunhæfur kostur fyrir starfsfólk sem á erfitt með að sækja hefðbundin námskeið. Því er full ástæða til að byggja á þessum fyrstu niðurstöðum, þróa aðferðina áfram og kanna hvernig fleiri vinnustaðir gætu nýtt sér hana. Fjárfesting í fólki og framtíðinni Öldrunarþjónustan stendur frammi fyrir mikilvægum áskorunum við að tryggja mönnun, styðja við starfsfólk og viðhalda gæðum þjónustunnar. Í því samhengi ætti að líta á starfstengt íslenskunám sem hluta af uppbyggingu mannauðs og þróun vinnustaða, fremur en tímabundið viðbótarverkefni. Það er hagur starfsfólks að geta eflt íslenskukunnáttu sína í öruggu og styðjandi umhverfi. Það er auk þess hagur vinnustaða að starfsfólk geti tekið virkan þátt í samskiptum og faglegu samstarfi. Jafnframt er það hagur íbúanna að samskipti séu skýr, að þarfir þeirra og óskir komist til skila. Ef við sem samfélag viljum að íslenskunám verði raunhæfur kostur fyrir íbúa landsins sem hafa annað móðurmál en íslensku þarf að tryggja að vinnustaðir hafi svigrúm og stuðning til að innleiða slíkar lausnir. Það kallar á samstarf vinnuveitenda, fræðsluaðila og stjórnvalda, ásamt fjármögnun sem gerir tungumálanámi kleift að verða hluti af daglegri starfsemi. Ef við viljum að íslenska verði ráðandi tungumál í fjöltyngdu samfélagi verðum við að skapa fólki raunveruleg tækifæri til að læra hana og nota. Við þurfum að hætta að líta á íslenskunám sem verkefni sem einstaklingurinn á einn að leysa í frítíma sínum. Ábyrgðin er sameiginleg og lausnirnar þurfa að endurspegla það. Ef vel tekst til er ávinningurinn samfélagsins alls. Með því að skapa fólki raunveruleg tækifæri til að læra og nota íslensku stuðlum við að varðveislu tungumálsins, auðveldum innflytjendum að verða virkur hluti af samfélaginu og byggjum upp samfélag þar sem allir upplifa að þeir tilheyri og hafi jöfn tækifæri. Fjárfesting í tungumáli er fjárfesting í fólki, vinnustöðum og samfélaginu öllu. Höfundar eru Rebekka Levin, erkefnastjóri fag- og þróunarmála hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Heiða Björk Vignisdóttir, lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslensk tunga Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar