Innlent

E. coli greindist í neyslu­vatni í­búa

Eiður Þór Árnason skrifar
Siglufjörður tilheyrir sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ekki er vitað um orsök mengunarinnar.
Siglufjörður tilheyrir sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ekki er vitað um orsök mengunarinnar. Vísir/Egill

E. coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Í ljósi þessa er íbúum ráðlagt að sjóða vatnið fyrir neyslu. Ákvörðunin var tekin í samráði við Matvælastofnun.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvað veldur menguninni en starfsmenn tæknideildar sveitarfélagsins Fjallabyggðar eru sagðir vinna að því að finna orsök hennar. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Fjallabyggð en umrætt sýni var tekið á mánudag. Þá er íbúum á Siglufirði bent á sérstakar leiðbeiningar um suðu neysluvatns á vef Heilbrigðiseftirlitsins.

Hyggst Heilbrigðiseftirlitið upplýsa íbúa þegar búið er að ljúka nauðsynlegum úrbótum á vatnsveitunni og vatnsgæði hafa verið endurheimt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×