Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. október 2026 22:03 Sóknaraðili segist hafa fengið útbrot vegna varafyllinganna. Vísir Kröfum einstaklings, sem segist hafa fengið útbrot eftir varafyllingar, upp á 250 þúsund krónur var hafnað af kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Nefndin féllst hins vegar ekki á rök þess sem sprautaði sem vildi meina að um væri að ræða heilbrigðisþjónustu.
Sóknaraðili gekkst undir varafyllingar þann 27. desember 2025 og sagði í kæru sinni að daginn eftir hefðu komið fram útbrot í andliti hans. Tveimur dögum síðar leitaði hann til læknis en útbrotin höfðu orðið væg eftir að sóknaraðili tók ofnæmislyf. Læknirinn ráðlagði sóknaraðilanum að halda áfram að taka lyfin. Sóknaraðilinn telur því að útbrotin hafi stafað af varafyllingunum en hann hafði fengið þær upplýsingar frá varnaraðilanum að varafyllingarnar væru öruggar og ekki væri hætta á ofnæmisviðbrögðum. Varnaraðili hafi einnig gert lítið úr einkennunum og hvatt sóknaraðila til að leita ekki til læknis. Í kærunni var farið fram á endurgreiðslu upp á 39.000 krónur, 5.900 krónur vegna læknis- og lyfjakostnaðar og 200.000 krónur í miskabætur. Varafyllingar væru heilbrigðisþjónusta Í úrskurði kærunefndarinnar er mál varnaraðilans einnig reifað en hann segist hafa afhent sóknaraðila bækling með upplýsingum um eftirfylgni. Útbrotin hafi þá verið sjáanleg í andliti sóknaraðilans þegar hann mætti í meðferðina. Varnaraðilinn fór þá fram á að málið yrði fellt niður annars vegar vegna þess að varafyllingarnar féllu undir heilbrigðisþjónustu og hins vegar vegna þess að hann hafi ekki fengið nægilegt tækifæri til að leysa úr ágreiningi áður en kvörtunin var lögð fyrir nefndina. Kærunefndin féllst ekki á rökin. Hins vegar mat hún svo að ekki væri hægt að fullyrða að orsakasamhengi væri á milli varafyllinganna og útbrotanna. Ljósmyndirnar sem lagðar voru fram með kærunni vörpuðu ekki nægilegu ljósi á orsök útbrotanna og lágu engin læknisfræðileg gögn fyrir sem staðfestu að um ofnæmisviðbrögð við fylliefninu hefði verið að ræða. „Þá verður hvorki ráðið af fyrirliggjandi gögnum að meðferðin hafi verið framkvæmd með ófullnægjandi hætti né að varnaraðili hafi sýnt af sér saknæma háttsemi við framkvæmd hennar,“ segir í úrskurði nefndarinnar. „Sóknaraðili byggir jafnframt á því að upplýsingagjöf varnaraðila fyrir meðferðina hafi verið ófullnægjandi. Að mati nefndarinnar hefur ekki verið sýnt fram á að varnaraðili hafi vanrækt upplýsingaskyldu sína gagnvart sóknaraðila eða að ætlaðir annmarkar á upplýsingagjöfinni hafi valdið sóknaraðila tjóni.“ Kröfum sóknaraðila var því hafnað.
Úrskurðar- og kærunefndir Útlit Lýtalækningar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Sjá meira