Lífið samstarf

Hor­móna­breytingar geta haft meiri á­hrif á tann­heilsu kvenna en margan grunar

Tannprýði
„Rannsóknir benda til þess að kynhormón kvenna, einkum estrógen, geti haft áhrif á tannholdið og viðbrögð þess við bólgum,“ segir Elín Gunnarsdóttir, tannlæknir hjá Tannprýði.
„Rannsóknir benda til þess að kynhormón kvenna, einkum estrógen, geti haft áhrif á tannholdið og viðbrögð þess við bólgum,“ segir Elín Gunnarsdóttir, tannlæknir hjá Tannprýði.

„Það er ánægjulegt að sjá þá vitundarvakningu sem hefur orðið um kvenheilsu á undanförnum árum, ekki síst aukinn skilning á sérstöðu hormónakerfis kvenna og áhrifum þess á heilsuna. Í þeirri umræðu hefur munn- og tannheilsa þó fengið takmarkaða athygli, þrátt fyrir að hormónabreytingar geti haft töluverð áhrif á tannhold og tennur.“

Þetta segir Elín Gunnarsdóttir, tannlæknir hjá Tannprýði, sem vill vekja athygli á þessum þætti kvenheilsunnar.

„Munnur og tennur gleymast oft þegar talað er um heilsu. Við gerum okkur kannski ekki alltaf grein fyrir því hversu mikilvægu hlutverki munnurinn gegnir í daglegu lífi. Hann er upphaf meltingarvegarins, gegnir lykilhlutverki í tali og tjáningu og er jafnframt hluti af öndunarveginum. Við treystum á heilbrigðan munn til að geta nærst, tjáð okkur og notið lífsins,“ segir Elín.

Hún bendir á að hormónakerfi kvenna taki miklum breytingum við kynþroska, á meðgöngu, við brjóstagjöf og á breytingaskeiði. „Rannsóknir benda til þess að kynhormón kvenna, einkum estrógen, geti haft áhrif á tannholdið og viðbrögð þess við bólgum. Algeng einkenni eru roði, þroti og blæðingar úr tannholdi.“

Á meðgöngu geta breyttar matarvenjur, ógleði og uppköst einnig aukið hættu á tannskemmdum töluvert. Á breytingaskeiði eru vandamál eins og munnþurrkur og tannholdsbólgur ekki óalgeng ásamt því að minnkuð beinþéttni getur haft áhrif á stoðvefi tannanna.

Elín leggur því áherslu á góða munnhirðu og reglulegt eftirlit. „Við tannsar þreytumst aldrei á að minna á gömlu góðu regluna: Best er að bursta tennurnar kvölds og morgna í tvær mínútur í senn með flúortannkremi, nota tannþráð daglega og heimsækja tannlækni reglulega. Þetta eru einfaldar en mikilvægar forvarnir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.