„Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2026 18:01 Guðjón Ingi Sigurðsson fær hér verðlaunin fyrir annað sætið frá Elisabetu Margeirsdóttur. Vísir/Viktor Freyr Skagamaðurinn Guðjón Ingi Sigurðsson varð í öðru sæti í bakgarðshlaupinu sem lauk snemma í morgun. Guðjón Ingi varð fyrir því óláni að detta í byrjun 69. hringsins og hætti því keppni.
Gunnar Lárus Karlsson kláraði 69. hringinn og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Þeir Gunnar og Guðjón höfðu fimm klukkutímum áður bætt Íslandsmetið ásamt Guðmundi Lúther Hallgrímssyni. Guðmundur kláraði methringinn, hring 63, en hætti svo keppni. Gunnar og Guðjón héldu áfram að hlaupa alla nóttina en fall Guðjóns Inga var örlagavaldur að þessu sinni. Það er ekkert grín að detta í brautinni þegar þú ert búinn að hlaupa í meira en tvo og hálfan sólarhring. Garpur I. Elísabetarson tók viðtal við Guðjón Inga í útsendingu Sýnar þegar hann kom til baka eftir að hafa dottið í brautinni en Garpur kallaði hann Skagamanninn svakalega. „Það var bara drulla“ „Ég náði ekki sjötíu,“ var það fyrsta sem kom upp úr Guðjóni Inga þegar Garpur gekk með honum síðasta spölinn inn í hús. „Ég var að koma úr næturbrautinni yfir í dagbraut og var að hlaupa yfir svæði sem ég endaði á að hlaupa yfir fyrr í kvöld. Það var bara drulla,“ sagði Guðjón Ingi. „Þetta voru lauf og svo var bara drulla undir. Þetta var bara eitt skref,“ sagði Guðjón sem meiddi sig í nárunum utan á hægri mjöðminni. „Ég dett ekki einu sinni heldur renn bara til hliðar,“ sagði Guðjón og kallaði sig klaufa en viðstaddir voru fljótir að leiðrétta hann þar. Guðjón Ingi Sigurðsson á hlaupum í brautinni.Vísir/Guðmundur Freyr Jónsson Guðjón var augljóslega sárþjáður og gat ekki lyft upp fætinum. Hann hafði hlaupið 68 hringi og meira en 455 kílómetra. Næ því bara næst „Ég ætlaði að ná sjötíu en næ því bara næst. Þetta var ævintýri,“ sagði Guðjón og brosti en hans nánustu stóð þó ekki alveg á sama. Það áttuðu sig ekki allir á því að Gunnar og Guðjón eru jafnaldar. „Báðu gömlu karlarnir. Er þetta ekki bara reynsla og fyrri störf,“ sagði Guðjón sem var svo sannarlega ekki búinn að týna góða skapinu þrátt fyrir þreytuna og verkina. Guðjón sagði að Gunnar hefði verið á undan honum og því ekki vitað að hann hefði dottið. „Við skulum ekki segja honum neitt og færum markið,“ sagði Guðjón léttur en hvernig leið honum eftir hlaupið? „Þetta veður um helgina var áskorun“ „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki en svo bara yfirstígur þú þá. Ég skil ekki hvernig ég gat verið búinn að hlaupa í tvo og hálfan dag í morgun en verið bara mjúkur og nánast verkjalaus fyrir utan einhverjar lausar táneglur og eitthvað svoleiðis,“ sagði Guðjón. „Þetta veður um helgina var áskorun. Maður var bara soðinn á fótunum og hafði ekki fyrir því að skipta um sokka því þeir yrðu blautir í fyrsta skrefi hvort sem er. Þarna er eitthvað sem maður getur komið með í reynslubankann,“ sagði Guðjón en hvað hugsaði hann þegar hann lagði af stað í keppnina? Guðjón Ingi Sigurðsson og Gunnar Lárus Karlsson eftir hlaupið.Vísir/Viktor Freyr „Ég sá fyrir að þetta yrði stutt keppni og hún myndi enda í svona fimmtíu hringjum sirka. Mig langaði að komast í fimmtíu hringi og viðurkenni það að ég fór inn í keppnina með það fyrir augum að ná því markmiði. Það heppnaðist í þetta skiptið,“ sagði Guðjón. Gunnar dró okkur áfram „Ég veit ekki hvað við vorum marga hringi saman, ég, Gunnar og Guðmmi. Gunnar í rauninni dró okkur áfram í næturbrautinni þegar við vorum að slá metið hans Þorleifs,“ sagði Guðjón sem bar sigurvegaranum Gunnari Lárusi góða söguna sem leiðtoga lokahópsins. „Við fylgdum honum og gerðum þetta saman þrír,“ sagði Guðjón og var svo spurður hvort Gunnar væri vel að þessum sigri kominn. „Algjörlega en þetta var svona óvænti sigurvegarinn eins og ég hafði spáð þessu. Það var samt ekkert óvænt við það þegar maður þekkir hans baksögu og hvað hann er að gera. Rosalegur hlaupari og íþróttamaður. Frábær manneskja,“ sagði Guðjón.
Bakgarðshlaup Tengdar fréttir Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Eftir að Íslandsmetið var bætt í Bakgarðshlaupinu í nótt var Guðmundur Lúther Hallgrímsson himinlifandi. Hann fór út í næsta hring en snéri fljótlega við og hætti hlaupinu. 20. október 2026 14:43 Velti fyrir sér að hoppa í ána Gunnar Lárus Karlsson setti Íslandsmet í bakgarðshlaupinu þegar hann kláraði 69. hringinn sinn. Garpur I. Elísabetarson tók viðtal við Gunnar Lárus þegar hann kom í mark og var hann virkilega ánægður með árangurinn eins og við mátti búast. 20. október 2026 09:23 Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Egill Örn Gunnarsson hlaupari leggur til að tekin verði upp „Steindavísitala“ sem væri eins konar viðmið fyrir alls konar íþróttakeppnir. 19. október 2026 18:18 Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira
Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Eftir að Íslandsmetið var bætt í Bakgarðshlaupinu í nótt var Guðmundur Lúther Hallgrímsson himinlifandi. Hann fór út í næsta hring en snéri fljótlega við og hætti hlaupinu. 20. október 2026 14:43
Velti fyrir sér að hoppa í ána Gunnar Lárus Karlsson setti Íslandsmet í bakgarðshlaupinu þegar hann kláraði 69. hringinn sinn. Garpur I. Elísabetarson tók viðtal við Gunnar Lárus þegar hann kom í mark og var hann virkilega ánægður með árangurinn eins og við mátti búast. 20. október 2026 09:23
Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Egill Örn Gunnarsson hlaupari leggur til að tekin verði upp „Steindavísitala“ sem væri eins konar viðmið fyrir alls konar íþróttakeppnir. 19. október 2026 18:18