Sport

Dag­skráin: Meistara­deild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Barcelona hefur ekki tapað leik á tímabilinu en það reynir á liðið í kvöld.
Barcelona hefur ekki tapað leik á tímabilinu en það reynir á liðið í kvöld. Getty/Eric Alonso/

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á þriðjudögum og það er mikið um að vera þetta kvöldið enda eru einnig tveir þættir á dagskrá.

Meistaradeildin heldur áfram í kvöld og það verður fullt af leikjum í beinni auk þess sem Meistaradeildarmessan fylgist með öllum leikjum kvöldsins í beinni og gerir síðan kvöldið upp í Meistaradeildarmörkunum.

Meðal liða sem eru í sviðsljósinu í Meistaradeildinni eru Liverpol, Manchester City og Napoli en stórleikur kvöldsins er á milli Paris Saint Germain og Barcelona.

Þrír leikir verða sýndir beint úr Bónus deild kvenna í körfubolta þar sem frændfélögin Valur og Haukar mætast í stórleik kvöldsins.

Körfuboltakvöld Extra mun fara yfir síðustu viku í Bónus deild karla þar sem Stefán Árni Pálsson og Andri Már Eggertsson, Nablinn, verða léttir á því.

Lokasóknin hefur af nægu að taka þegar hún fer yfir síðustu helgi NFL-deildarinnar en að vanda var mikið um óvænt úrslit og rosaleg tilþrif.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Vals og Hauka í Bónus deild kvenna í körfubolta.

Klukkan 21.15 hefst þáttur af Körfuboltakvöldi Extra þar sem síðasta vika í Bónus deild karla í körfubolta verður gerð upp á skemmtilegan hátt.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Njarðvíkur og Fjölnis í Bónus deild kvenna í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Stjörnunnar og Tindastóls í Bónus deild kvenna í körfubolta.

Sýn Sport

Klukkan 18.30 hefst Meistaradeildarmessan þar sem Gummi Ben og félagar fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í einu.

Klukkan 21.00 hefst Meistaradeildarmörkin þar sem verða sýnd öll mörkin og helstu atvikin úr Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 21.50 hefst þáttur af Lokasókninni þar sem farið verður yfir síðustu helgi í NFL-deild ameríska fótboltans.

Sýn Sport 2

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Fenerbahce og Slavia Prag í Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Paris Saint Germain og Barcelona í Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 3

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Manchester City og AEK í Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Napoli og Bodö/Glimt í Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 5

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Porto og PSV í Meistaradeildinni í fótbolta.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Sabah og Dortmund í Meistaradeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Liverpool og Villarreal í Meistaradeildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×