Skoðun

Ætlum við að fækka bílum eða bara öku­mönnum með sjálf­keyrandi bílum?

Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Það er eitthvað ákaflega íslenskt við það að ræða framtíð sjálfkeyrandi bíla og fyrsta hugmyndin sé að senda þá til Vestmannaeyja. Ég held það sé reyndar geggjuð hugmynd, Vestmanneyingar hafa sýnt það í gegnum árin að það eru fáir með betri aðlögunarhæfni. En áður en við sendum fyrsta sjálfkeyrandi bílinn um götur Heimaeyjar þurfum við að svara einni mikilvægri spurningu:

Ætlum við að nota þessa tæknibyltingu til að fækka bílum á götunum eða bara fylla göturnar af bílum sem enginn situr undir stýri á?

Framsýni sem ber að fagna

Á Alþingi í gær fóru fram áhugaverðar umræður um sjálfkeyrandi bíla. Sérstaklega vil ég hrósa Sigríði Andersen fyrir að hefja þessa umræðu í gær og Rósu Guðbjartsdóttur fyrir frábæra umfjöllun um sjálfkeyrandi bíla undanfarið. Þetta er nákvæmlega sú framsýni sem við þurfum frá stjórnmálafólki. Að undirbúa jarðveginn áður en tæknin bankar upp á, í stað þess að hlaupa á eftir þróuninni.

Ég tek líka undir mikilvægar áhyggjur Dags B. Eggertssonar og Pawels Bartoszek af því að sjálfkeyrandi bílar geti aukið umferð í stað þess að draga úr henni.

Pawel tók skemmtilegt dæmi af tónleikagesti í Hörpu sem sendir sjálfkeyrandi bílinn sinn heim í stað þess að leggja honum. Bíllinn kemur svo aftur að sækja eigandann. Tvær ferðir eru orðnar fjórar, án þess að nokkur nýr farþegi hafi bæst við. Þetta er einmitt sú framtíð sem við eigum að forðast.

Lausnin er deilihagkerfið

Sjálfkeyrandi bílar eru stórkostlegt tækifæri, en tæknin ein og sér leysir engan umferðarvanda. Munurinn liggur í því hvernig við nýtum hana. Í stað þess að hvert heimili eigi sinn sjálfkeyrandi bíl, sem stendur ónotaður stærstan hluta sólarhringsins eða keyrir tómur um göturnar, getum við byggt upp samgöngukerfi þar sem færri bílar nýtast fleirum.

Og það þarf ekki að finna upp rekstrarmódel. Það er nú þegar til staðar. Við hjá Hopp höfum undanfarin sjö ár byggt upp deilihagkerfi á Íslandi. Yfir 100 þúsund einstaklingar nota þjónustuna árlega. Margir þeirra eru með bílpróf, gætu keypt sér bíl, en kjósa samt að deila farartækjum í stað þess að nota eigin bíl í hverja ferð.

Við rekum rafskútur, rafknúna deilibíla og leigubíla. Við vitum hversu flókið það getur verið að dreifa farartækjum eftir eftirspurn, tryggja aðgengi, sinna viðhaldi og veita góða þjónustu.

Sjálfkeyrandi bíll þarf nefnilega ekki bara að kunna að keyra. Einhver þarf að reka þjónustuna í kringum hann. Þetta er ekki bara tækniverkefni. Þetta er rekstrarverkefni.

Ríkið á að setja leikreglurnar, ekki reka bílana

Ég fagna hugmyndinni um að prófa sjálfkeyrandi bíla í Vestmannaeyjum. En ég tel mikilvægt að ríkið fari ekki sjálft í rekstur slíkrar þjónustu. Hlutverk stjórnvalda er að tryggja öryggi, skýra ábyrgð, setja skynsamlegar reglur og skapa aðstæður fyrir nýsköpun. Einkaaðilar sem þegar hafa reynslu af deilisamgöngum eru hins vegar vel í stakk búnir til að annast daglegan rekstur, í samstarfi við tæknifyrirtæki og hið opinbera.

Það væri óþarfi að byggja upp nýtt opinbert rekstrarkerfi utan um þjónustu sem einkaaðilar hafa þegar þróað og öðlast reynslu af.

Stærsta tækifærið er bíllinn sem við þurfum ekki að kaupa

Við höfum lengi rætt orkuskipti út frá því hvað knýr bílana áfram. En rafbíll tekur jafn mikið pláss og bensínbíll og sjálfkeyrandi bíll tekur jafn mikið pláss og bíll með ökumanni. Raunverulega byltingin verður þegar tæknin gerir okkur kleift að nýta færri bíla betur.

Þegar fjölskyldur geta sleppt öðrum bílnum. Þegar eldra fólk og fólk án bílprófs fær aukið ferðafrelsi. Þegar við hættum að líta á einkabíl sem nauðsynlega eign og förum að líta á aðgang að bíl sem sjálfsagða þjónustu.

Við þurfum að sjálfsögðu að prófa tæknina við íslenskar aðstæður, tryggja öryggi og gæta þess að tómar ferðir auki ekki umferðina. En við eigum líka að vera metnaðarfull. Byrjum endilega í Eyjum. En hugsum stærra. Við hjá Hopp erum tilbúin að taka þátt í þeirri vegferð.

Framtíðin á ekki að vera sú að hver Íslendingur eignist sjálfkeyrandi bíl. Hún á að vera sú að hver Íslendingur hafi aðgang að þeim ferðamáta sem passar ferðinni sem hann fer í þegar hann þarf á honum að halda, án þess að þurfa að eiga hann. Það væri bylting sem væri þess virði að keyra af stað.

Höfundur er framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur.




Skoðun

Sjá meira


×