Forystan sé búin að missa klefann Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. október 2026 16:59 Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar. vísir/Anton Brink/einar „Viðreisn hefur að mínu mati fjarlægst mikilvægan hluta af sínu eigin erfðamengi. Við höfum gleymt að halda góðri stemmningu í klefanum.“
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. Greinin er birt í kjölfar þess að Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í síðustu viku. Hann starfar nú sem óháður þingmaður undir samkomulagi við ríkisstjórnina. Jón hefur síðustu daga varpað ljósi á meinta kergju innan Viðreisnar. Hann segir skort á forystu innan flokksins og hefur talað um klíkumyndun og ósætti milli stórra persónuleika í forystu flokksins. Lovísa málar ekki upp bjarta mynd af stöðunni innan flokksins: „Ég viðurkenni það hér með að síðustu vikur og mánuði hef ég verið tilbúin til að kasta inn handklæðinu. Ég hef velt því alvarlega fyrir mér hvort ég nenni yfirhöfuð að halda áfram að halda með liðinu mínu. Hvort orkan sem fer í þetta sé þess virði og hvort ég geti enn staðið með því sem verið er að gera.“ Hafi lengi afsakað misgóðar ákvarðanir Athygli hefur vakið að Jón hefur mikið notað myndmál til að lýsa stöðunni innan Viðreisnar. Lovísa grípur einmitt í myndmál til að lýsa sinni upplifun og líkir stöðunni hjá Viðreisn við fótboltalið í hálfleik sem gerir sig tilbúið fyrir að leika síðari hálfleikinn. Það að vera í stjórnmálaflokki sé svipað og að halda með fótboltaliði að hennar mati. „Ég hef haldið með Viðreisn síðan 2017. Ég hef mætt á leiki, verið á sjoppuvöktum, grillað hamborgara, öskrað í stúkunni, farið heim og bölvað liðinu og meira að segja æft linnulaust og gert tilraun til að komast í liðið. Ég hef fyllt á vatnsbrúsa og þrifið klefana,“ skrifar hún. Hún segist lengi hafa getað afsakað misgóðar ákvarðanir leiðtoga flokksins á þeim nótum að flokkurinn væri ungur. „Við hefðum aldrei spilað í efstu deild og til þess að komast þangað þyrfti að taka áhættu. Allir yrðu að leggja hönd á plóg. Allt þetta borgaði sig. Þingstyrkur Viðreisnar þrefaldaðist í kosningunum 2024 og sama hvað þér finnst um flokkinn þá hefur vörumerkið aldrei verið eins stórt og einmitt núna.“ Flokkurinn hafi brugðist Hún ítrekar þó að núna sé hún svekkt út í flokkinn. Svekkelsið byggist fyrst og fremst á forgangsröðun og ákvarðanatöku ríkisstjórnarinnar. Hún áréttar að ólíkt sumum fótboltastuðningsmönnum muni hún ekki standa með liði sínu sama hvað. Hún segist fyrst og fremst vera manneskja með gildi og að hún hafi gengið til liðs við flokkinn því hann hafi endurspeglað þau. „Og mér finnst flokkurinn minn hafa brugðist þeim að einhverju leyti. Ég hef saknað fyrirsjáanleika í málflutningi og ákvarðanatöku, skýrari upplýsingamiðlunar og meiri áræðni í frelsismálum. Mér finnst hagsmunir almennings um land allt ekki hafa fengið það vægi sem þeir eiga skilið og ég hef saknað samstöðu þess sterka teymis sem ég taldi okkur vera.“ Hún segir mikilvægt að geta gagnrýnt eigið lið. Hún beri ábyrgð á stöðunni jafnt og aðrir innan flokksins. „Forysta er ekki bara formaður og varaformaður, þingflokksformaður eða framkvæmdastjóri. Forysta er líka fólkið sem heldur starfinu gangandi, mætir á fundina, vinnur sjálfboðavinnuna og stendur í stúkunni þegar illa gengur.“ Að hennar mati eigi að gera auknar kröfur til kjörinna fulltrúa. Þeir séu eins og leikmenn fótboltaliðs sem tapa og vinna leiki. „Ég hef upplifað máttleysi, skort á því að láta verk fylgja orðum inni á Alþingi og þróttleysi gagnvart því sem Viðreisn lagði upp með í kosningabaráttunni 2024. Mér finnst við hafa verið of upptekin af því að vera ábyrg og skynsöm til þess að muna eftir því að vera líka hugrökk.“ Hún segir að sökina megi rekja til þess að flokkurinn sitji í ríkisstjórn með tveimur flokkum til vinstri. Forgangsröðunin byggi eðli málsins samkvæmt á samningaviðræðum. „En ekki er hægt að skrifa allt á samstarfsflokkana eða ríkissjóð. Og það er ekki hægt að biðja stuðningsfólk endalaust um þolinmæði án þess að sýna því hvert ferðinni er heitið. Viðreisn hefur að mínu mati fjarlægst mikilvægan hluta af sínu eigin erfðamengi. Við höfum gleymt að halda góðri stemningu í klefanum.“ Segir flokkinn þurfa að vakna áður en það verður um seinan Hún segist hafa gengið til liðs við flokk gleðinnar, mennskunnar og hlýjunnar. Hún kallar eftir því að fá þann flokk aftur. „Þetta er ekki ákall um að skipta út leikmönnum eða reka þjálfarann. Ég hef engan áhuga á að fara í manninn þegar boltinn liggur fyrir framan okkur. En það er heldur engin ástæða til að klappa fyrir slæmri sendingu bara af því að hún kemur frá okkar eigin leikmanni.“ Það blasi við að hennar mati að það þurfi að breyta leikskipulaginu. Hún segist ekki tilbúin að sitja í stúkunni og horfa á leikinn fara í sandinn. Skrif hennar séu persónuleg yfirlýsing um að hún ætli að leggja sitt af mörkum til að vekja flokkinn úr leiðslu að feigðarósi. Hún segir það langt því frá að hún sé ein um þessar skoðanir. „Víða um land situr fólk í sömu treyju og ég, fólk sem hefur lagt á sig ómælda vinnu, trúir enn á málstaðinn en hefur verið að velta því fyrir sér hvort það nenni að mæta á næsta leik,“ segir hún og tekur fram að kominn sé tími til að Viðreisnarmenn láti vel í sér heyra. „Það er síðari hálfleikur að byrja. Nú er að duga eða drepast.“
Viðreisn Alþingi Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira