Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. október 2026 11:59 Ingólfur Eiríksson er kennari við Sorbonne-háskólann. vísir/epa Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar mátti heyra hóp lögreglumanna beita táragasi gegn mótmælendum í París en þar hélt óeirðaralda áfram í gærkvöld og í nótt. Louvre-safninu lokað í morgun og neyðarfundur Óeirðirnar spruttu upp í kjölfar mótmæla stúdenta í Frakklandi sem kalla eftir auknu fjármagni og betri kennsluaðstöðu. Fljótlega fóru mótmælin að vinda upp á sig og hafa eins og stendur hundruð þúsund manna tekið þátt. Stór hluti mótmælenda kvarta undan síauknum framfærslukostnaði. Hluti þeirra sem hefur haldið út á götur Parísar og annarra stórborga hefur haft skemmdarverk og ofbeldi í frammi. Um tvö þúsund manns hafa verið handteknir í mótmælunum og þá hafa 150 lögreglumenn slasast. Brotist hefur verið inn í hinar ýmsu verslanir og eldur lagður að byggingum. Mótmælendur lokuðu fyrir innganginn að Louvre-safninu í morgun sem er eitt fjölsóttasta safn heims. Lokunin hefur farið friðsamlega fram og sungu mótmælendur baráttusöngva gegn fasisma, líkt og lagið Bella ciao, Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kallað eftir stillingu og ró en hann hefur neitað að samþykkja afsögn innanríkisráðherra Frakklands vegna mótmælanna. Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, boðaði til neyðarfundar í dag vegna stöðunnar. Sumum borgum hefur verið heimilað að setja á útivistarbann. Ekki hefur komið fram hvaða borgir er um að ræða. Utanríkisráðuneytið staðfestir við fréttastofu að engin mál eru á borði borgaraþjónustu ráðuneytisins vegna mótmælanna og þá staðfestir sendirráð Íslands í París að enginn hafi leitað þangað síðustu daga. Eggjum kastað í mótmælendur Ingólfur Eiríksson, íslenskukennari við Sorbonne-háskólann, segir í samtali við fréttastofu að lífið gangi að mestu sinn vanagang þrátt fyrir mótmælin. „Þessi mótmæli stúdenta hafa að langmestu leyti verið friðsamleg. Þetta byrjar í menntaskólum og síðan hafa önnur skólastig, sérstaklega háskólar, sýnt þessu samstöðu. Eina ofbeldið sem ég hef orðið var við var þegar eggjum var kastað í mótmælendur fyrsta daginn sem þeir lokuðu fyrir inngang skólans. Þeir hafa setið hérna fyrir utan skólann og komið í veg fyrir að kennsla eigi sér stað.“ Öll kennsla Ingólfs fer nú fram í gegnum fjarfundarbúnað. Nemendur hafi fordæmt skemmdarverk og óeirðir hluta mótmælenda. „Það sem hefur gripið fyrirsagnirnar á sáralítið tengt við þessi mótmæli stúdenta. Það verður líka að segjast að lögreglan hefur brugðist með mjög harkalegum hætti. Nemendur hafa stórslasast, nemandi hefur misst höndina og lögreglan hefur verið gagnrýnd mjög harkalega fyrir hvernig hún hefur tekið á málum.“
Frakkland Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira