Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „„Á dauða mínum átti ég von“ Aron Guðmundsson skrifar 16. október 2026 08:02 Arsenal slagsíðan er mikil á Rakarastofu Björns og Kjartans. Vísir/Lýður Nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands fengu Kjartan Björnsson, hinn vel þekkta rakara og stuðningsmann Arsenal, til þess að samþykkja eitthvað sem hann hélt að hann myndi aldrei á ævinni gera.
Kjartan er einn harðasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi og klæðist jafnan treyju liðsins í vinnunni. Hann er einn af stofnmeðlimum Arsenal-klúbbsins á Íslandi og var um árabil formaður klúbbsins. Nú stendur yfir góðgerðarvika Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar er safnað peningum í þágu góðs málefnis og er í þetta skiptið verið að safna fyrir styrktarfélagið Börn með krabbamein. Tveir nemendur FSU, sem jafnframt eru stuðningsmenn Liverpool, ákváðu að skora á Kjartan að klæðast Liverpool-treyju í einn dag fari svo að safnist 520 þúsund krónur. „Á dauða mínum átti ég von, en það að vera beðinn um að klæðast Liverpool-treyju einn vinnudag í þágu góðs málstaðar gerir mér erfitt fyrir,“ segir Kjartan í færslu á Facebook þar sem að hann birtir myndband af heimsókn nemenda FSU. „Í dag birtust tveir nemendur úr FSU, báðir Liverpool-stuðningsmenn, með áskorun til mín um að klæðast treyju Liverpool sem ég hef aldrei nokkurn tíma gert í mínu lífi fyrr og aldrei staðið til. Ég tek þó þessari áskorun ef söfnunin nær 520 þúsund og helst miklu meira. Upplýsingar um reikningsnúmerið fylgja hér með og ef þú ert svo kaldhæðinn að vilja að Arsenalrefurinn klæðist Liverpool-treyju getur þú gert það að veruleika.“ Það ræðst í dag hvort draumur nemenda FSU og jafnframt martröð Kjartans verði að veruleika. Fyrir þau sem vilja ólm styðja við gott málefni og um leið sjá Kjartan í Liverpool-treyju er bæði ljúft og skylt að birta söfnunarreikninginn hér fyrir neðan: Góðgerðarvika FSU: Reikningsnúmer: 0189-26-006604 Kennitala: 660490-2569
Enski boltinn Arsenal FC Liverpool FC Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti Fleiri fréttir Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Sjá meira