Enski boltinn

Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig

Valur Páll Eiríksson skrifar
Simons gengur menntaveginn.
Simons gengur menntaveginn. Getty

Xavi Simons stundar viðskiptanám við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum á meðan hann nær sér af krossbandsslitum.

Hinn 23 ára gamli Xavi Simons varð fyrir miklum vonbrigðum þegar hann sleit krossband í apríl síðastliðnum. Ekki aðeins var þannig strembnu fyrsta tímabili með Tottenham á Englandi lokið á undan áætlun heldur missti hann einnig af HM með hollenska landsliðinu.

Simons hefur verið tekinn inn í Crossover into Business-námið við bandaríska háskólann, sem fer fram á netinu. Námið á að aðstoða fólk við tilfærslu á vinnumarkaði í viðskiptalífið, líkt og heiti þess ber með sér.

Námskeiðið stendur yfir í eina önn var „hannað til að hjálpa atvinnuíþróttamönnum að vera betur undirbúnir fyrir viðskiptastörf meðan á virkum íþróttaferli þeirra stendur og að honum loknum“.

Meistaranemar við Harvard Business School eru leiðbeinendur íþróttamannanna á meðan á náminu stendur.

„Á meðan ég hef verið að jafna mig hef ég reynt að nýta tímann eins vel og mögulegt er,“ skrifaði Simons á LinkedIn.

„Fótboltinn er enn í forgangi hjá mér, en ég vil líka halda áfram að læra og bæta mig utan vallar. Ég er ánægður að greina frá því að ég hef verið tekinn inn í Crossover Into Business-námið við Harvard Business School,“ skrifar Simons.

Simons hitti meðal annars Jayson Tatum í Boston meðan hann fór vestur um haf vegna námsins.Harry How/Getty Images

„Ég hef alltaf haft áhuga á fleiru en bara fótbolta. Ég vil skilja viðskiptahlið íþróttarinnar betur, læra af fólki úr ólíkum atvinnugreinum og halda áfram að þroskast sem manneskja,“

„Að snúa aftur á völlinn er enn mitt helsta forgangsatriði. Á sama tíma vil ég nýta þetta tímabil til að halda áfram að læra og fjárfesta í sjálfum mér utan fótboltans,“ skrifar Simons enn fremur.

Simons bætti við að hann hefði dvalið í Bandaríkjunum undanfarnar vikur og heimsótt Harvard á meðan hann var í Boston.

Í Boston varði Simons tíma með Jayson Tatum, framherja Boston Celtics í NBA-deildinni, og David Pastrnak, fyrirliða Boston Bruins, í NHL-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×