Enski boltinn

Oft orðaður við United en kom með skýrt svar

Aron Guðmundsson skrifar
Gareth Southgate starfaði síðast sem landsliðsþjálfari Englands
Gareth Southgate starfaði síðast sem landsliðsþjálfari Englands Vísir/Getty

Gareth Southgate, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, sér ekki fyrir sér að snúa aftur og taka við þjálfun félagsliðs í ensku úrvalsdeildinni. 

Southgate hefur frá því að hann lét af störfum sem landsliðsþjálfari Englands eftir tap í úrslitaleik á EM 2024 verið orðaður við endurkomu í enska boltann og hefur nafn hans oftar en ekki skotið upp kollinum í tengslum við stjórastöðuna hjá Manchester United.

Nú segir Southgate hins vegar frá því að hann telji ólíklegt að hann taki við félagsliði í ensku úrvalsdeildinni.

Frá þessu greinir Southgate í viðtali við The Amol Rajan Connection en BBC vitnar í viðtalið en ástríðan fyrir fótboltanum virðist á einhvern hátt hafa dregist saman hjá Englendingnum

„Þegar líða tók á tíma minn sem landsliðsþjálfari Englands hætti ég að geta notið. Það voru sigrarnir sem héldu manni gangandi. En undir lokin var ég meira að segja hættur að njóta sigranna nema bara í nokkrar mínútur. Síðan þá hef ég varla horft á fótbolta.“

Southgate segist hafa horft á sitt gamla félag, Crystal Palace, verða enskur bikarmeistari á Wembley en að síðan þá hafi hann ekki stigið fæti inn á leikvang til þess að horfa á fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×