Innlent

Nálgist neyðar­á­stand

Eiður Þór Árnason skrifar
Gunnlaugur Briem er formaður Félags sjúkraþjálfara. Hann telur að það verði erfitt fyrir Reykjalund að ná sjúkraþjálfurum til sín aftur að óbreyttu. 
Gunnlaugur Briem er formaður Félags sjúkraþjálfara. Hann telur að það verði erfitt fyrir Reykjalund að ná sjúkraþjálfurum til sín aftur að óbreyttu.  Vísir/Ívar fannar

Formaður Félags sjúkraþjálfara segir alvarlega stöðu vera uppi á Reykjalundi og stutt í að lýsa þurfi yfir neyðarástandi. Félagið greindi frá því á dögunum að fjöldi sjúkraþjálfara hefði hætt störfum og fjöldi starfandi verði líklega kominn úr 24 í þrettán eftir áramót.

„Við höfum í raun og veru haft töluverðar áhyggjur af þessu máli núna um nokkurt skeið og við töldum okkur í raun og veru vera komin í þá stöðu að það væri eiginlega ekki hægt að bíða lengur með að bregðast við vegna þess að við höfum verið að sjá töluvert mikið af uppsögnum þar sem okkar fólk er að segja upp störfum,“ sagði Gunnlaugur Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Klippa: Segir stjórnendur Reykjalundar hafa vitað fyrir hálfu ári að helmingur sjúkraþjálfara myndi segja upp

Ástæður uppsagnanna séu fjölþættar og húsakostur Reykjalundar sé til að mynda í slæmu ásigkomulagi.

„Ég held að stjórnendur þar séu ekki öfundsverðir þegar kemur að þeim málaflokki. Samhliða þessu hafa verið væntanlega töluverðar rekstrarlegar aðhaldskröfur á starfsemina. Það hefur verið farið í niðurskurð og sá niðurskurður hefur haft veruleg áhrif á þann starfsmannahóp sem við höfum þarna innan og svo sem líka á fleiri aðila.“ Þetta hafi leitt til þess að þó nokkur fjöldi hafi ákveðið að leita annað eftir að hafa starfað á Reykjalundi í allt að tuttugu til þrjátíu ár.

Þið eruð að fara úr 24 [sjúkraliðum] niður í 12 til 13. Erum við að tala um neyðarástand?

„Ég held að við séum alveg klárlega að nálgast þá stöðu,“ segir Gunnlaugur.

Er hægt að halda sömu þjónustu úti með helmingi færra fólki?

„Ég held að það sé ekki hægt, nei. Við þurfum ekkert að fara neitt í kringum það. Bæði auðvitað snýst þetta um þjónustuna við þá skjólstæðinga sem þurfa að sækja þessa þjónustu en samhliða auðvitað fylgir þá líka gríðarlegt álag fyrir þá sjúkraþjálfara sem þurfa að bera uppi þjónustu fyrir allan þennan hóp.“

Skortur á samráði

Mygla hefur fundist í húsnæði Reykjalundar og það spilar inn í starfsmannavandann, að sögn Gunnlaugs.

„Það virðist samt líka vera að sú aðferðafræði sem hefur verið þarna í tengslum við þennan niðurskurð hafi líka töluverð áhrif.“ Þar á meðal sé skortur á samráði við starfsfólk.

Er traust starfsfólks til yfirstjórnar einfaldlega brostið?

„Alveg klárlega hjá einhverjum, já.“

Starfsfólk Reykjalundar varaði stjórnvöld og embætti landlæknis við stöðu mála í mars, að sögn Gunnlaugs.

„Það var kannski meira til upplýsingagjafar og reyna að opna þetta samtal og opna þessa stöðu. Ef ég man rétt þá hafa verið 49 aðilar frá ólíkum heilbrigðisstéttum sem skrifuðu undir þetta bréf.

Ég get alveg sagt það að ég veit að það komu svör en ég sýni því líka alveg skilning að ráðuneytið og embætti landlæknis kannski geta ekki beitt sér með beinum hætti að rekstri eða rekstrarákvörðunum tiltekinna stofnana.“

Hafi bein áhrif á þjónustuna

Gunnlaugur telur að skortur á sjúkraliðum muni leiða til þess að forgangsraða þurfi þjónustu Reykjalundar frekar.

„Sem dæmi þá hefur starfsemin verið byggð upp þannig hingað til að það er mikil áhersla á þverfaglega samvinnu þar sem er í rauninni sambland annars vegar af hópmeðferðarúrræðum og síðan einstaklingsúrræðum. En vegna mikillar manneklu í dag þá er á mörgum sviðum ekki hægt að veita eins mikla einstaklingsmeðferð og við höfum í raun og veru vanist.“

Talmeinaþjónusta hefur þegar verið lögð niður. Þið hafið einnig áhyggjur af sálfræðingum, iðjuþjálfurum og næringarfræðingum. Er ekki hægt að segja að þverfaglega módelið á Reykjalundi sé að molna?

„Það eru allavega verulegar áskoranir í því, það er alveg klárt mál,“ svarar Gunnlaugur.

Sitji ekki og bíði eftir símtali

Gunnlaugur telur það verða mjög erfitt að ráða inn nýtt fólk á þessum tímapunkti.

„Svo ég tali nú bara fyrir minn hóp þá er gríðarleg eftirspurn eftir okkar félagsfólki og margir auglýsa og það er bara erfitt að manna stöður. Þannig að það er ekki eins og það liggi hópar á lausu sem bíða eftir því að einhver hringi í sig.“

„Við sjáum alveg vöntun á ýmsum stöðum en mönnun eins og á Landspítalanum til dæmis er að mér skilst núna í betri farvegi heldur en hún var fyrir nokkrum árum síðan og það er vel.“

Það vanti fleiri sjúkraþjálfara á Íslandi til að mæta þörfinni á landsvísu.

„Það eru biðlistar og ég held að þetta sé kannski svolítið í samræmi við þessar áherslur sem stjórnvöld hafa verið að tala fyrir, sem er það að tryggja atvinnugetu. Við viljum halda sem flestum í vinnu og líka í raun og veru þjónustan við elsta aldurshópinn þar sem við erum að byggja mikið á hjúkrunarheimilum og öðru slíku. Til þess að þetta dæmi gangi upp þurfum við að geta veitt þjónustu fyrr í ferlinu. Það er grunnurinn í staðinn fyrir það bara að byggja. En að sjálfsögðu styðjum við það að það séu byggð öflug hjúkrunarheimili og þjónusta fyrir alla.“

Gunnlaugur telur að það verði erfitt fyrir Reykjalund að ná aftur í þann hóp sjúkraþjálfara sem hafi þegar sagt upp störfum.

„En það er kannski líka partur af því af hverju við töldum að við gætum ekki beðið lengur er að við teljum að staðurinn megi ekki við meiri skakkaföllum þegar kemur að mönnun. Við bindum vonir við það að það sé hægt að snúa þessari þróun við.“

Boltinn er nú hjá stjórnendum Reykjalundar, að mati Gunnlaugs.


Tengdar fréttir

Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína

Stjórn Félags sjúkraþjálfara, FS, áætlar að sjúkraþjálfurum við Reykjalund gæti fækkað um helming í upphafi næsta árs miðað við það sem var fyrir rúmu ári. Þá hafi verið um 24 sjúkraþjálfarar starfandi á stofnuninni en vegna uppsagna verði þeir líklega ekki nema um þrettán í upphafi næsta árs. Stjórn félagsins segir þetta þegar hafa leitt til aukins álags, óöryggis í starfsumhverfi og brotthvarfs mikilvægrar sérfræðiþekkingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×