Þakklát fyrir að vera á lífi eftir að járnplata flaug inn líkt og hnífur Eiður Þór Árnason skrifar 15. október 2026 21:46 Ásta Gunna Kristjánsdóttir vissi ekki hvar þau áttu að byrja þegar þau komu fyrst að húsinu í dag. aðsend „Sem betur fer vorum við ekki hérna í gær þegar þetta gekk á því að við hefðum líklega ekki lifað af. Ef við hefðum verið í rúminu eða í eldhúsinu þá hefðum við stórslasast.“ Þetta segir Ásta Gunna Kristjánsdóttir en hús fjölskyldunnar á Siglufirði stórskemmdist í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær.
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegginn og þvert yfir íbúðina þar sem hún skildi eftir sig slóð eyðileggingar. „[Platan] tekst á loft og lendir að hluta til á steyptum skúr sem er hérna hinum megin við götuna hjá okkur. Ef það hefði ekki gerst þá hefði ábyggilega ekkert orðið eftir af húsinu. Svo kemur þessi plata ásamt fleiru, sker í sundur og það fóru tveir ljósastaurar hérna sitt hvorum megin við húsið og grindverk hringinn í kringum húsið alveg kubbaðist niður.“ Þar að auki hafi tveir bílar sem stóðu við næsta hús skemmst í átökunum. „Þannig að þetta eru hamfarir.“ Klippa: Skemmdir inni hjá Ástu á Siglufirði Hún handleggsbrotin og hann í krabbameinsmeðferð „Maður er þakklátur almættinu fyrir að hafa ekki verið hérna og hafa þó þessa heilsu. Ég er að vísu nýhandleggsbrotin og eiginmaðurinn í krabbameinsmeðferð þannig að við erum kannski ekki alveg í besta standi í þessu. En við getum þetta.“ Þegar fréttamaður náði tali af Ástu í kvöld var hún á kafi í tiltekt ásamt eiginmanni sínum og syni. „Hér er bara verið að rífa niður allt sem ónýtt er. Það er mikið að gera.“ Hér má sjá brakið sem fauk í áttina að húsinu og göt á útveggnum.Ásta Gunna Kristjánsdóttir „Við urðum að moka hérna út til að reyna að loka húsinu því það snjóaði bara inn. Það er allt ónýtt í eldhúsi og svefnherbergi og burðarveggur bara ónýtur.“ Hjónin eru alla jafna búsett í Hafnarfirði en þau hafa átt þetta aukahús við Túngötu 29 á Siglufirði sem hún kallar sælureitinn í þrettán ár. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau hafa fundið fyrir náttúruöflunum en á flæddi inn í húsið fyrir meira en átta árum. „Þetta hús á sína sögu. Það er ýmsu vant.“ Komust fyrst að húsinu í dag Vinafólk lét þau vita af því í gær að húsið hefði skemmst í óveðrinu og komu hjónin til Siglufjarðar síðdegis í dag. „Það var auðvitað ófært hingað í gær þannig að við lögðum af stað í morgun. Við erum núna búin að tæma allt út sem ónýtt er og núna er verið að rífa veggi.“ Útveggur sem snúi í norðurátt hafi eyðilagst í hvellinum í gær og einnig veggur sem skilur að svefnherbergi og eldhús. „Hann gekk allur til. Þegar við erum búin að hreinsa allt út úr húsinu þá sjáum við þakplötuna sem skar í rauninni húsið í sundur því hún fer alveg hérna í gegnum svefnherbergið og eldhúsið. Það er mjög áberandi. Það þarf að rífa vegginn í norðuráttinni sem skemmdist,“ segir Ásta. Hjónarúmið er skemmt og hluti af þakplötu hefur greinilega flogið í gegnum herbergið.Ásta Gunna Kristjánsdóttir „Það var allt á floti inni og hjónarúmið alveg gjörsamlega í öreindum.“ Þá hafi þvottavél og ísskápur stórskemmst en ísskápshurðin var komin inn í næsta herbergi. Hún segir greinilegt að mikil öfl hafi verið þarna að verki: „Það hafa verið svakaleg læti.“ Vonast eftir því að fá hjálp „Við vorum búin að fá myndir þannig að maður var svona búinn að undirbúa sig andlega. En þetta var miklu verra heldur en að sjá á myndum. Það að standa inni í þessu er bara miklu verra, sjá allt og upplifa þessi öfl. Það er eiginlega mesta áfallið að náttúran skuli vera svona öflug.“ Ásta er þó brött og segir þetta einfaldlega vera verkefni sem þau hafi fengið í hendurnar og muni nú takast á við. Þau eiga von á matsmanni frá tryggingafélagi sínu á morgun. Þvottavél og ísskápur fóru illa út úr hvellinum. Ásta Gunna Kristjánsdóttir „Við vonum að það sé einhver sem komi og hjálpi okkur að gera eitthvað. Við erum bara eldri borgarar og höfum ekki burði til að gera þetta sjálf. Þó að við séum ótrúlega öflug þá eru takmörk.“ Verja þurfi húsið fyrir veðri og vindum þar sem nú sé hreinlega opið út og snjór kemur inn. „Það er alveg ótrúlegt að sjá þessa járnplötu alveg inni í miðju húsi. En svona er þetta bara. Ég væri ógeðslega reið ef þetta hefði verið sprengja frá einhverjum vitleysingum en þetta var bara náttúran. Maður getur ekkert verið reiður út af því.“ Vongóð og þakklát „Þetta er gamalt hús sem var upphaflega byggt fyrir sendibílastöð. Þá var það 50 fermetrar. Við keyptum það svoleiðis, byggðum við það og stækkuðum þannig að það er 100 fermetrar í dag og algjör sælureitur. Við getum gist hérna 20 manns og allir á skíðum og verið með stóra fjölskyldu þannig að þetta er bara algjört æði,“ segir Ásta um húsið. Hún bindur vonir við að endurbætur muni ganga greiðlega fyrir sig. „Jájájá, eins og ég segi þá dó enginn. Maður þarf alltaf að vera ánægður með það.“
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira