Innlent

Niður­staðan hafi á­hrif á fram­tíð Eflingar innan ASÍ

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gefa báðar kost á sér í embætti fyrsta varaforseta ASÍ.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gefa báðar kost á sér í embætti fyrsta varaforseta ASÍ. vísir/samsett

Það ræðst í dag hvort varaforsetum Alþýðusambands Íslands verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir. Niðurstaða um varaforsetaembættið gæti haft áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ.

Nefndarstörf eru á dagskrá þings ASÍ í dag og þar mun laganefnd meðal annars taka fyrir tillögu miðstjórnar sambandsins um að fækka varaforsetum úr þremur í einn. Allar líkur eru taldar á því að tillagan verði afgreidd frá nefndinni og að hún verði borin undir atkvæði þingfulltrúa síðar í dag.

Málið er hápólitískt og inn í það blandast opinberar deilur Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Þær hafa báðar gefið kost á sér í embætti fyrsta varaforseta sambandsins – og þess eina verði tillagan samþykkt.

Önnur umræða og afgreiðsla lagabreytinga hefst klukkan hálf þrjú. Atkvæðagreiðsla um tillöguna mun fara fram með handauppréttingu og aukinn meirihluta þarf til þess að hún verði samþykkt en á þinginu eru tæplega þrjú hundruð fulltrúar.

Sólveig Anna sagði í gær að til greina kæmi að Efling segi sig úr ASÍ. Í samtali við fréttastofu í dag segir hún að það myndi hafa áhrif á ákvörðun um að yfirgefa sambandið ef varaforsetum verður fækkað og Halla nái kjöri. Það ráði þó ekki úrslitum og að um sé að ræða samtal sem hafi verið í gangi innan félagsins í töluverðan tíma. Umræðan sé hins vegar komin á alvarlegra stig og að nú sé verið að skoða þann kost af meiri dýpt.

Breytingartillaga gæti þó einnig verið borin fram við atkvæðagreiðslu um tillöguna í dag, líkt og til dæmis að varaforsetum verði fækkað úr þremur í tvo en ekki einn. Kjörið verður í embætti forseta og varaforseta á morgun og atkvæði verða greidd um hvert embætti fyrir sig. Sólveig Anna segist ekki munu gefa kost á sér í annað embætti nái hún ekki kjöri sem fyrsti varaforseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×