Fótbolti

Skot­flaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ron­aldo

Aron Guðmundsson skrifar
Cristiano Ronaldo í leik gærkvöldsins
Cristiano Ronaldo í leik gærkvöldsins Vísir/Getty

Skotflaug sem Hútar skutu í áttina að Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, varð til þess að leik hjá Cristiano Ronaldo og liðsfélögum hans í liði Al-Nassr var seinkað.

Það er sádi-arabíska dagblaðið Arriyadiyah sem greinir frá þessu en meira en stundarfjórðungs seinkun varð á leik Al-Nassr við Neftchi frá Úsbekistan sökum þessa en liðin voru að mætast í annarri umferð AFC Meistaradeildarinnar.

Sádi-Arabar náðu að koma í vef fyrir að skotflaugin hæfði Riyadh en Hútar eru sagðir ábyrgir fyrir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad á dögunum þar sem að minnst tólf létu lífið og á fjórða hundrað særðust.

Leikur Al-Nassr og Neftchi gat að lokum hafist og þar fór Al-Nassr með 3-1 sigur af hólmi. 

Cristiano Ronaldo skoraði eitt marka liðsins og færist nú nær 1 þúsund marka takmarki sínu á ferlinum. Hann er kominn með 981. mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×