Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Aron Guðmundsson skrifar 12. október 2026 12:31 Ægir Þór Steinarsson átti erfitt uppdráttar í fyrstu umferð Bónus deildarinnar eins og Stjörnuliðið í heild sinni. Vísir/Pawel Sérfræðingar Körfuboltakvölds voru í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu Stjörnunnar í fyrstu umferð Bónus deildarinnar á dögunum.
Stjörnumenn áttu alls ekki góða byrjun á tímabili sínu í Bónus deild karla í körfubolta gegn Valsmönnum á útivelli. Leikurinn tapaðist, 90-77, en það var kannski það hvernig hann tapaðist sem situr í mönnum. „Sko, ég var eiginlega bara í sjokki að horfa á þennan leik,“ sagði Benedikt Guðmundsson, einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds, um frammistöðu Stjörnunnar. „Það náttúrulega bara gekk ekkert. Þetta er bara eins og hjá einhverjum byrjendum. Maður bara trúði varla sínum eigin augum og það var sama hvert var litið. Ég er nú búinn að þekkja Ægi Þór frá því hann var polli. Ég hef aldrei séð hann spila svona illa sóknarlega.“ Klippa: Aldrei séð Ægi Þór spila svona illa Ægir skoraði tvö stig af vítalínunni í leiknum en engin af tveggja stiga tilraunum hans sex fór ofan í körfuna og það sama má segja um fimm tilraunir hans fyrir utan þriggja stiga línuna. Frammistaðan heilt á litið hafi verið virkilega vond hjá Stjörnunni. „Emil Barja, þjálfari liðsins, viðurkenndi það bara í viðtali eftir leik. Þetta var bara verulega vont og ég eiginlega svona fann til með honum því að maður þekkir það bara þegar þú ert að taka við nýju starfi. Fyrsti leikur er ekki alltaf unninn. En þú vilt koma með frammistöðu, þú vilt sýna fólki hvað þú ert að setja þarna inn, koma með einhver einkenni. Þú vilt fá svona allavegana stuðningsmenn með þér. Þetta var ekki leikurinn til þess að fá stuðningsmennina með því að ég gæti trúað að það hafi verið neikvæðni í Garðabænum eftir þessa stjörnugölnu frammistöðu.“ Umræðuna úr Körfuboltakvöldi um mjög svo erfiða byrjun Stjörnunnar á tímabilinu í Bónus deildinni má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Körfuboltakvöld Bónus-deild karla Körfubolti Stjarnan Valur Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Sjá meira