Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Tómas Arnar Þorláksson skrifar 11. október 2026 17:22 Halla Hrund tekur Akureyri og Akranes sem dæmi um staða þar sem flóðahættan er raunveruleg. Vísir/Lýður Valberg Þingmaður Framsóknarflokksins segir að stjórnvöld megi ekki sofa á verðinum þegar kemur að sjóvörnum. Niðurskurður til málaflokksins skjóti skökku við í ljósi hækkunar sjávar og aukinnar sjávarflóðahættu. Ísland sé á flæðaskeri statt.
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ársins 2030. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vakti athygli á niðurskurðinum á Alþingi í vikunni. „Samgönguáætlun sýni þveröfuga áherslu“ Í desember á síðasta ári birti Veðurstofa Íslands skýrslu um mat á sjávarstöðuhækkun. Þar er gert ráð fyrir því að sjávarflóðahætta muni aukast verulega hér á landi á næstu áratugum með hækkandi sjávarmáli. Þörfin fyrir sjóvarnir aukist til muna. „Í raun og veru má segja að samgönguáætlun sýni þveröfuga áherslu með niðurskurði í stað þess að sýna þá sókn sem málaflokkurinn þarf á að halda. Við erum dálítið á flæðaskeri stödd en við þurfum fast land undir fótum í þessum málaflokki eins og í öðrum náttúruvám,“ sagði Halla Hrund í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Í desember varð mikið flóð við Vík í Mýrdal og gekk sjór til að mynda yfir þjóðveginn. Sveitarstjóri Mýrdalshrepps lýsti þá aðgerðarleysi stjórnvalda og sagði að ef ekki yrði ráðist í sjóvarnir á svæðinu myndi vegurinn að endingu fara í sundur. „Megum ekki láta þessi samfélög sitja eftir“ Halla segir ljóst að mikilvægum innviðum verði einnig stefnt í hættu víða annars staðar ef ekki verður brugðist við. „Það eru fleiri bæjarfélög hringinn í kringum Ísland sem hafa verið að finna fyrir auknum ágangi sjávar og eru að kalla eftir því að stjórnvöld fjárfesti meira í vörnum sem passa þá upp á bæði innviði og heimili. Sko, Vík í Mýrdal, Suðurnesjabær, Akranes og Akureyri eru dæmi um staði þar sem þetta er farið að hafa áhrif og farið að vera raunverulegur áhættuþáttur.“ Það sé kominn tími til að fjárfesta í öflugri vörnum. Í raun sé um landsbyggðarmál að ræða. „Við höfum lengi búið við skriðuföll, jarðskjálfta og snjóflóð. Þar er kortlagning og vöktun komin lengra og viðbrögð í fjárfestingu varnargarða komin lengra, en við megum ekki láta þessi samfélög sitja eftir vegna þessarar nýju ógnar.“
Akureyri Akranes Mýrdalshreppur Suðurnesjabær Náttúruhamfarir Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira