Innlent

Spenna fyrir þingi ASÍ og fram­lög til sjóvarna ekki næg

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Formaður Starfsgreinasambandsins hefur áhyggjur af stöðunni innan ASÍ fyrir þing sambandsins í vikunni og segir að forsætisráðherra hafi ekki sagt allan sannleikann í atburðarásinni þegar kjarasamningar voru framlengdir í vikunni.

Við heyrum hvað Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði um stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar í fréttatímanum en hann var gestur á Sprengisandi í morgun líkt og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.

Þingmaður Framsóknar segir að framlög til sjóvarna séu ekki í samræmi við mat Veðurstofunnar og þá segjum við frá mótmælum vegna sjókvíaeldis á Seyðisfirði sem fara fram samtímis fyrir austan og á Austurvelli í dag.

Einnig verður rætt við forstjóra Rio Tinto um brunann í álverinu í Straumsvík í gær og forseta Landssamtaka íslenskra stúdenta um niðurstöður þjóðarsamtals en niðurstöðurnar verða kynntar í Hörpu í dag.

Hútar eru taldir standa á bakvið árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær og hafa varað við því að farþegar ferðist um flugvelli landsins.

Í íþróttunum verður farið yfir stórleik dagsins í enska boltanum sem og leik Fram og KR í Bestu deild karla í gærkvöldi.

Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×