„Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 10. október 2026 14:01 Diljá Mist sagði að hún vonaðist til að Þórður Snær Júlíusson færi að jafna sig á tapinu í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Vísir/Einar/Vilhelm Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki skilja að orð Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, séu túlkuð á neikvæðan hátt og gefur lítið fyrir grein framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar um lygar í aðdraganda ESB-atkvæðagreiðslunnar. Í orðum Rubio hafi falist tækifæri til aukinna viðskipta á milli Íslands og Bandaríkjanna.
Í lok september birti Sjálfstæðisflokkurinn færslu á FB þar sem skrifað var að stefna ætti að gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin. Marco Rubio sló gerð fríverslunarsamninga þó nánast út af borðinu á blaðamannafundi með utanríkisráðherra í vikunni og sagði tíma slíkra samninga liðinn en opnaði á viðræður um tvíhliða afmarkaða viðskiptasamninga. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, skrifaði grein í kjölfarið þar sem hann sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa selt þjóðinni lygi um mögulegan fríverslunarsamning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst. „Vindáttin er bara eins og hún er með þessa fríverslunarsamninga“ Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd, gefur lítið fyrir orð Þórðar Snæs. „Það er nú erfitt að ná utan um alla þessa löngu pistla hans en ég vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu í þessari atkvæðagreiðslu því næg eru verkefnin fyrir þessa ríkisstjórn,“ sagði Diljá í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Við höfum alltaf sagt að þetta gerist ekki af sjálfu sér. Ég var aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs [Þórðarsonar] þegar hann var utanríkisráðherra, þá lögðum við gríðarlega áherslu á tvíhliða samráð við Bandaríkin og það skilaði sér meðal annars í reglubundnu árlegu efnahagslegu viðskiptasamráði.“ Dilja segir skrýtið að orðum Rubios sé snúið í eitthvað neikvætt. „Vindáttin er auðvitað bara eins og hún er varðandi fríverslunarsamninga. Aðalatriðið er að við aukum samskiptin og ræktum þessi tengsl, þessi nánu tengsl við Bandaríkin, til þess að það leiði til aukinna viðskipta.“ Nákvæmlega í takt við áherslur Sjálfstæðisflokksins Hún segir að það dragi ekki úr trúverðugleika Sjálfstæðisflokksins þó að flokkurinn hafi lagt áherslu á fríverslunarsamning svo skömmu áður en Rubio sagði tíma slíkra samninga liðinn. „Ég endurtek bara að í orðum Rubio fólst að hann var að opna á samkomulag til þess að auka viðskipti þjóðanna. Þannig að ég myndi segja þvert á móti að þetta er nákvæmlega í takt við þær áherslur sem við höfum haft og sýnt í verki.“ Þá þurfi ríkisstjórnin að grípa öll tækifæri eins og það sem Rubio bauð upp á. Jákvætt sé að til standi að senda viðskiptasendinefnd út til Bandaríkjanna. „Þessi vinna gerist ekki af sjálfu sér og ég hef einmitt verið að gagnrýna ríkisstjórnina undanfarin tvö ár fyrir sinnuleysi og fyrir forgangsröðunina. Þannig að nú er auðvitað bara að horfa fram á við og reyna að fylgja þessu eftir.“
Bandaríkin Utanríkismál Skattar, tollar og gjöld Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira