Erlent

Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Vance varaforseti var spurður út í það hvernig aftaka í beinni útsendingu samræmdist kristinni trú hans.
Vance varaforseti var spurður út í það hvernig aftaka í beinni útsendingu samræmdist kristinni trú hans. Getty

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, dregur í efa að bandaríska varnarmálaráðuneytið muni standa við áform sín um að sýna aftöku Nidal Hasan í beinni útsendingu.

Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið við blaðamenn í dag og sagði alls óvíst að bein útsending yrði frá aftökunni.

„Ég veit ekki hvort þetta muni í raun gerast,“ sagði Vance. Hann bætti við að yrði aftökunni streymt í beinni myndi hann sjálfur ekki horfa á hana.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að stjórnvöld hygðust gera almenningi kleift að fylgjast með aftökunni í beinni útsendingu. Yfirlýsingin hefur verið fordæmd um allan heim.

Vance tók fram að ágreiningurinn um framkvæmd aftökunnar mætti ekki skyggja á glæpi Hasans. Hann lýsti árásinni sem versta hryðjuverki á bandarískri grundu utan árásanna 11. september 2001 og benti á að Hasan hefði verið geðlæknir innan hersins, sem hefði átt að aðstoða hermenn sem glímdu við andleg veikindi og önnur vandamál. Þess í stað hefði hann skotið þá þegar þeir voru hvað berskjaldaðastir.

Þrettán létust í árásinni

Hasan hóf skothríð í fjölmennri heilbrigðisbyggingu á Fort Hood-herstöðinni í Texas 5. nóvember 2009. Þar biðu hermenn meðal annars eftir læknisskoðunum og bólusetningum áður en þeir yrðu sendir til starfa erlendis.

Þrettán létust og 32 særðust. Um var að ræða mannskæðustu árás á bandaríska herstöð utan stríðsátaka í sögu landsins.

Hasan, sem þá var majór í bandaríska hernum, viðurkenndi síðar fyrir dómi að hafa framið árásina. Við herrétt árið 2013 sagðist hann hafa talið sig vera að verja múslima og Talíbana í Afganistan gegn bandaríska hernum.

„Bandaríkin eru betri en þetta“

Áformin um beina útsendingu aftökunnar hafa sætt harðri gagnrýni bæði úr röðum repúblikana og demókrata.

John Curtis, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, hefur varað við því að opinberar aftökur geti breyst í blóðugt sjónarspil og ýtt undir það að fólk líti á aftökur sem skemmtun.

Austin Scott, þingmaður repúblikana frá Georgíu, sagðist styðja dauðarefsingu yfir Hasan en ekki beina útsendingu.

„Þetta er það sem jíhadistar gera. Bandaríkin eru betri en þetta,“ sagði Scott.

Chris Murphy, öldungadeildarþingmaður demókrata, hefur sömuleiðis kallað hugmyndina viðbjóðslega og líkt henni við aftökur Íslamska ríkisins.

Kaþólska biskuparáðið í Bandaríkjunum hefur fordæmt áformin. Vance snerist sjálfur til kaþólskrar trúar fyrir nokkrum árum og var sérstaklega spurður hvernig útsending aftökunnar samræmdist trú hans.

Sameinuðu þjóðirnar fordæma áformin

Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur sagt beina útsendingu frá aftökunni jafngilda opinberri aftöku og geta brotið gegn fortakslausu banni við pyndingum.

Opinberar aftökur eru nú afar sjaldgæfar. Samkvæmt Amnesty International fóru opinberar aftökur aðeins fram í tveimur ríkjum á síðasta ári sem vitað er af, Íran og Afganistan.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sjálfur lýst stuðningi við að Hasan verði tekinn af lífi af aftökusveit. Embættismaður í Hvíta húsinu sagði þó að afstaða forsetans til beinu útsendingarinnar væri ekki endanlega ákveðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×