Innlent

Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þekkt mun vera að heimamenn laumist í laugina eftir lokun.
Þekkt mun vera að heimamenn laumist í laugina eftir lokun. Vísir/Vilhelm

Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir þessu og leiðbeint þeim.

Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir þessu og leiðbeint þeim.

RÚV hefur eftir Þórarni Inga Péturssyni þingmanni Framsóknarflokksins að hópur þing- og heimamanna hafi skellt sér í laugina eftir lokun, með leyfi sveitarstjórnarfulltrúa. Þeim hafi verið leiðbeint hvernig þeir ættu að bera sig að.

Kjördæmavika Alþingis var í síðustu viku og formleg dagskrá var á Vopnafirði á miðvikdag. Þingmenn sóttu kynningu hjá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði ásamt sveitastjórnarfulltrúum í Vopnafjarðarhreppi.

Samkvæmt umfjöllun RÚV mun Stefán Guðnason, oddviti sveitarstjórnarinnar, hafa orðið var við að hugmyndir um þetta hafi borið á góma yfir kvöldmatnum. Hann hafi brýnt fyrir sveitarstjórnarfólkinu að taka ekki þátt. 

Það sé sömuleiðis vitað að heimamen fari stundum í sund utan opnunartíma, áður hafi laugin verið opin allan sólarhringinn. Ekkert sé aðhafst gangi fólk vel um. Vísir ræddi einnig við umsjónarmann laugarinnar sem kannaðist ekki við málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×