Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. október 2026 07:02 Hjónin Robert Currie og Anne Carson búa á Ægisíðu og eru höfðingjar heim að sækja. Daginn eftir að Carson hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum ræddu þau hjónin við blaðamann í hálftíma um bókmenntir, Ísland og ýmislegt annað. Vísir/Magnús Jochum Nóbelsverðlaunahafinn Anne Carson segist hafa slysast út í skrifin og geti ekki hætt úr þessu. Ekkert sem hún geri sé úthugsað og yfirleitt rambi hún á góðar hugmyndir. Hún og maður hennar keyptu sér íbúð á Ægisíðu og urðu íslenskir ríkisborgarar árið 2022 eftir að hafa heimsótt landið reglulega frá árinu 2008. Íslendingar hafi tekið þeim opnum örmum en því fylgir einmanaleiki að tala ekki tungumálið. Carson greindist með Parkinsons-sjúkdóm fyrir þremur árum og heldur honum í skefjum með boxi, sundi og spinning-tímum.
Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von um að ná tali af verðlaunahafanum en kom að tómu húsi. Carson hafði mínútum fyrr rætt við fréttastofu Rúv í vindinum í vesturbænum og síðan flúið með eiginmanni sínum, myndlistarmanninum Robert Currie, úr símasambandi. Anne Carson og Robert Currie hafa búið í hinu sögufræga húsi Lambhóli síðan 2022.Magnús Jochum Ritstjóri Vísis gafst þó ekki upp, bankaði upp á hjá hjónunum um kvöldið og kríaði út viðtal daginn eftir. Upp úr hádegi á föstudag fór undirritaður því öðru sinni niður að Ægisíðu þar sem hjónin búa í hinu sögufræga húsi Lambhóli alveg við sjóinn. Robert kom til dyra, tók vel á móti blaðamanni og spurði hvort hann væri með sínar þrjár spurningar klárar. Forsenda fyrir viðtalinu hafði verið að það yrði stutt. Þaðan fylgdi hann blaðamanni inn í heimilislega íbúð þeirra hjóna þar sem Anne sat í eldhúsinu við fartölvu og reyndi að svara þeim þúsundum tölvupósta sem henni höfðu borist síðasta sólarhringinn. Þau hjónin sögðust sem betur fer ekki vera með samfélagsmiðla. Síðan var sest niður við dúkað borð í borðstofunni sem snýr út að sjónum. Hófst þá samtal við viðkunnalegu hjónin, sem teygði sig reyndar í hálftíma, um listina, dvölina á Íslandi og hvað Nóbelsverðlaunaskáldið er að lesa þessa dagana. Húmor og einlægni einkenndi tilsvör hjónanna. Íbúðin er merkt þessu krúttlega handskrifaða skilti. Flúðu í Elliðaárdalinn Á fimmtudaginn lýsti Carson því yfir við fjölmiðla að það væri henni hulin ráðgáta að hún skyldi hafa fengið Nóbelinn, tilfinningin væri klikkuð. Þegar Carson ræddi við blaðamann degi síðar var hún ekki enn búin að melta tíðindin almennilega, þau væru enn jafn klikkuð og skrítin og þegar þau bárust fyrst. „Þau verða það örugglega áfram fyrir þig,“ segir Robert um tíðindin við Anne. Anne finnst hún ekki eiga Nóbelsverðlaunin skilið en það sé mikill heiður að vera í hópi með Halldóri Laxness. Verðlaunaféð, rúmar 130 milljónir íslenskra króna, ætli hún sér að gefa til góðra málefna. Sjá einnig: Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Raunar virðist Anne ekki hafa mikið um verðlaunin að segja þannig að blaðamaður beinir spurningunni annað. Hvert fóruð þið til að komast undan áreitinu á fimmtudaginn? „Við förum alltaf í Elliðaárdalinn,“ segir Anne. „Við fórum í göngutúr, það er frábær staður,“ bætir Robert við. „Fengum að hanga með svölu krökkunum“ Þó að Anne Carson sé þekkt nafn í bókmenntakreðsum þá er hún ekki sérlega þekkt meðal Íslendinga. Þá vissu sennilega fæstir sem lásu fréttirnar á fimmtudaginn að Nóbelsverðlaunahafinn væri íslenskur ríkisborgari. Hvers vegna eruð þið hér á Íslandi? „Við komum 2008 fyrir listaverkefni, residensíu í Stykkishólmi, og okkur líkaði við fólkið. Við fengum að taka þátt í öðrum verkefnum svo við héldum áfram að koma hingað aftur,“ segir Anne. Anne Carson er átjánda konan, þriðji Kanadamaðurinn og annar íslenski ríkisborgarinn til að hljóta Nóbelsverðlaun í bókmenntum.Vísir/Magnús Jochum „Eins og Ragnar Kjartansson orðaði það, við fengum að hanga með svölu krökkunum,“ skýtur Robert inn. Þau hefðu komið til landsins reglulega eftir fyrstu heimsóknina og heillast af staðnum. „Síðan keyptum við íbúð í þessu húsi svo það var auðvelt fyrir okkur að koma hingað,“ segir Anne en þau gerðu 2022, sama ár og þau urðu bæði íslenskir ríkisborgarar. „Verum hreinskilin, þetta er eins svalt hús og þau geta orðið,“ segir Robert. „Þetta er einstök staðsetning og vindurinn er líka einstakur hérna,“ bætir Anne við. Lambhóll er tignarlegt hús sem var reist í tveimur áföngum, sá fyrri um 1920 og sá seinni á sjöunda áratugnum.Vísir/Sigurjón Einmanalegt að tala ekki tungumálið Þau hjónin segja veruna á Íslandi hafa sína kosti og galla. Fólkið sé almennilegt en það hafi áhrif á upplifunina að tala ekki íslensku og skilja ekki málið. „Það er einmanalegt. Við tölum ekki íslensku og þú getur ekki lært málið með því að æfa þig í verslunum eða í sundlauginni því allir tala ensku. Það er ákveðin gremja sem fylgir því. Maður upplifir sig dálítið utangarðs í menningunni þegar maður getur ekki lesið málið eða skilið það sem er um að vera,“ segir Anne. „Allir reyna samt að láta manni líða velkomnum,“ skýtur Robert inn í. „Þau gera það, þannig þetta er smá vafasamur ávinningur. En ég er að reyna að læra íslensku svo ég verði á endanum, einn daginn, betri,“ segir Anne. Hvernig æfirðu þig? „Ég les barnabækur og ýmislegt annað, kennslubækur,“ segir Anne sem ætlar að skrá sig í áfanga í íslensku sem öðru máli í Háskóla Íslands á næsta ári. „En þetta er flókið tungumál eins og þú veist.“ Ekkert úthugsað hjá skáldinu Anne fæddist í Toronto árið 1950, ólst upp í ýmsum kanadískum smábæjum þegar hún var yngri og las mikið sem barn. Fimmtán ára gömul uppgötvaði hún forngríska skáldið Saffó sem var kveikjan að ástríðu hennar fyrir forngrísku og leiddi hana á endanum í nám í forngrískum bókmenntum. „Ég var sílesandi þegar ég var yngri. Mig langaði aldrei að verða rithöfundur en ég las mjög mikið. Síðan lærði ég grísku og las á forngrísku og núna les ég á íslensku,“ segir Anne um inngöngu sína í bókmenntirnar. Carson hefur gefið út sextán skáldsögur á ferli sínum og þýtt sjö verk úr forngrísku.HÍ/Kristinn Ingvarsson Carson varð doktor í forngrískum bókmenntum frá Toronto-háskóla árið 1981 og hefur kennt þær í fjóra áratugi víða um Bandaríkin. Doktorsritgerð hennar, Odi et Amo Ergo Sum eða Ég elska og ég hata, þess vegna er ég, var það fyrsta sem kom út eftir hana og endurvann hún hana fyrir bókmenntaritið Eros the Bittersweet (1986). Þá þegar var hún byrjuð að skrifa ljóð en fyrsta verkið sem birtist eftir hana var innblásið af Grikkjunum. „Ég var að hugsa um þetta í gær, ég hafði gleymt því, það fyrsta sem birtist eftir mig var í ljóðatímaritinu Invisible City, sem er ekki lengur til í dag, og það fjallaði um forngrískan höfund,“ segir Anne um ljóðið „Some Greeks: Fragments of Greek Papyri“. „Ég bjó hann til, skáldaði ævisögu hans og ýmis verk hans sem höfðu öll glatast. Ég sendi þetta á þau eins og þetta væri alvöru manneskja og alvöru textabrot. Ég var svo stressuð yfir því að þau myndu uppgötva að þetta væri allt skáldað. En þau gerðu það aldrei.“ Þannig að þetta hefur fylgt þér frá byrjun, þessi blanda... „Staðreynda og skáldskapar,“ segir Anne til að klára setninguna. Anne Carson hlaut Vigdísarverðlaunin árið 2023 fyrir störf sín í þágu tungumála, menningar og þýðingararfs.HÍ/Kristinn Ingvarsson Þú hrærir saman prósa, ljóðum og forngrísku hefðinni í skrifunum, kemur þetta til þín eða er þetta úthugsað? „Ég held að ekkert sem ég geri sé úthugsað, ég er ekki með hlutina mjög á hreinu,“ segir Anne. „Nema feluleikurinn, hann er úthugsaður,“ bætir Robert við. „Já, feluleikurinn í skóginum,“ segir Anne og undirritaður er ekki viss hvort hún sé að vísa í Elliðaárdalinn eða frumskóg bókmenntanna. „Þetta er meira og minna gert í ógáti þar sem ég rekst utan í hluti. Hér er hugmynd, af hverju geri ég þetta ekki? Hér er önnur hugmynd,“ segir Anne um aðferðafræði sína. „Hluti af þessu tengist því hvernig þú skipuleggur skrifborðin þín,“ bætir Robert við. „Mögulega, mér finnst gott að hafa ólíkar bækur, staðsettar af handahófi, á borðinu. Síðan nota ég þær eftir geðþótta, flakka milli skrifa og lesturs og nota hvað sem kemur út úr því,“ segir Anne. Anne og Robert hafa unnið náið saman að ýmsum verkefnum.Vísir/Magnús Jochum „Af því þú ert með þrjú skrifborð þá þarftu ekki að ganga frá hlutunum. Þú ert með skrifborð fyrir þýðingarnar, skrifborð fyrir listina og skrifborð fyrir skrifin. Það þýðir að frekar en að þú þurfir að ganga frá hlutunum þá er það allt þarna, handahófskennt og opið,“ segir Robert. „Ég teikna mjög mikið og það er sérstaklega gott að skilja teikningarnar eftir á borðinu. Ef þú gengur frá þeim finnst þér of mikið maus að ná aftur í þær og ferð að gera eitthvað annað,“ segir Anne. Hún blandi öllu saman og sé ekkert sérlega fókúseruð þegar kemur að listsköpuninni. „Ég held ég muni alltaf starfa svona. En ef ég finn eitthvað þá get ég farið dýpra og dvalið þar, það veltur auðvitað á hugmyndinni.“ „Þetta var leið sem ég fetaði óvart“ Anne segist ekki vita hvers vegna hún skrifi og raunar hafi hún óvart byrjað að skrifa út frá teikningum sínum. „Ég byrjaði að skrifa fyrir slysni því ég var vön að teikna og setti titla á teikningarnar. Svo líkaði fólki við titlana þannig að ég byrjaði að lengja þá. Þeir urðu litlir fyrirlestrar og það varð að skrifum. Þetta var leið sem ég fetaði óvart, gleðilegt slys,“ segir hún. „Mér finnst teikningarnar enn skemmtilegar en fæstum öðrum finnst það,“ bætir hún við. Nokkrar af teikningunum sem Carson sýndi í Kling&Bang árið 2021.Kling&Bang Anne hefur haldið sýningar á teikningum sínum gegnum árin og tók þátt í samsýningunni Dýpsta sæla og sorgin þunga með Ragnari Kjartanssyni, Höllu Birgisdóttur og Margréti Dúadóttur Landmark í Kling&Bang árið 2021. „Ég varð óvart rithöfundur og núna verð ég að halda því áfram, ég get ekki hætt núna,“ segir Anne. Þú hefur tileinkað líf þitt forngrísku, lært og kennt tungumálið, þýtt verk og aðlagað þau í verkum þínum. Hvað gerir tungumálið svona lífsseigt? „Það er besta tungumálið, held ég. Ég veit ekki af hverju en mér finnst það,“ segir Anne. „Tungumálið er best og Hómer er sá besti innan forngrískunnar.“ Hómer er alltaf móðins. Því næst beinist samtalið að næstu verkefnum Anne. „Ég er ekki að vinna að því núna en við erum að setja upp óperuna Herakles Mad, sem byggir á þýðingu eftir mig, í Basel næsta vor,“ segir Anne og Robert bætir við: „Með Ragnari Kjartanssyni og Bryce Dessner úr hljómsveitinni The National.“ „Svo erum við að reyna að aðlaga Autobiography of Red, sem ég skrifaði fyrir mörgum árum, að sviðinu með breska leikaranum Ben Whishaw. Við höfum ekki viljað aðlaga það áður,“ segir Anne. Á kafi í Stendhal og mælir með Proust og Taylor Hvað hefurðu verið að lesa þessa dagana? „The Charterhouse of Parma eftir Stendhal. Hún er sex hundruð síður og uppfull af ítalskri pólitík 18. aldar. Hún er þung á ákveðinn hátt, ásetningurinn er ekki þungur því hún er léttlynd og dálítið írónísk en það er erfitt að fylgja sögunni. Hvað hef ég verið að lesa fleira?“ segir Anne. „Daphne,“ svarar Robert. „Daphne du Maurier, sem er nokkuð léttúðugur skáldskapur, og svo Knausgaard, safn af esseyjum hans sem ég fann í bókabúð,“ bætir Anne við. Anne hefur verið að lesa Karl Ove Knausgaard, Daphne du Maurier og Stendhal.Getty/Wiki Ekki sjálfsævisögulegu skrifin hans? „Nei, það er fyrir ofan minn skilning. Ég vil ekki vita svona mikið um nokkra manneskju,“ segir hún. Ertu ekki gefin fyrir sjálfsögur (e. auto-fiction)? „Nei, ég veit ekki hvað það er, sjálfsögur. Allur skáldskapur virðist vera sjálfsævisögulegur á einhvern hátt, þú dregur skrifin úr þínu eigin lífi. Allavega, ég er hrifnari af esseyjunum hans,“ segir Anne. Reyndirðu að lesa stóra ævisögubálkinn hans? „Ég las helminginn af fyrsta bindinu en svo var hann að skræla appelsínu eða eitthvað í níu blaðsíður og ég hætti,“ segir Anne. Anne er mikið fyrir Proust. „En þú ert hrifin af Proust, hann hefði skrælt appelsínu í níu blaðsíður og þér hefði fundist það allt í lagi,“ skýtur Robert inn í. „Nei, hann hefði skrælt appelsínu á þúsund mögulega vegu. Það er allt önnur tegund af orðgnótt,“ segir hún. Eru einhverjar bækur sem þú mælir með? „Á ensku væru það verk Elizabeth Taylor, ég veit að það var leikkona sem hét Elizabeth Taylor en þetta er enski skáldsagnahöfundurinn Elizabeth Taylor sem er frábær. Og svo Proust, hann er alltaf þess virði,“ segir Anne. Boxar, syndir og fer í spinning „Ég boxa,“ segir Anne þegar blaðamaður spyr hvernig hún verji tímanum þegar hún er ekki að skrifa eða lesa bækur. Boxar? „Já, ég boxa í Mjölni. Við vorum þar áðan, ég fer í boxtíma á mánudögum og föstudögum,“ segir hún. „Þú byrjaðir í boxinu út af Parkinsons-greiningunni,“ segir Robert. „Ég er með Parkinsons-sjúkdóm og boxið er góð meðferð við honum vegna þessarar blöndu af heila- og líkamsæfingum. Ég byrjaði á því fyrir nokkrum árum í Bandaríkjunum og svo hélt ég því áfram hér með vinum í Mjölni,“ segir Anne. Anne boxar tvisvar í viku.X Hvenær greindistu með Parkinsons-sjúkdóm? „Fyrir sirka þremur árum, það er eins og það er. En það er hægt að létta eða minnka sjúkdómseinkennin með ýmsum æfingum. Ég boxa og fer í sund í Vesturbæjarlaug og spinning-tíma í hinni líkamsræktinni, World Class,“ segir Anne. „Ég veit ekki hvað við gerum fleira, við förum oft á rúntinn og keyrum um,“ bætir hún við. „Við heimsækjum vini og borðum kvöldverði með vinum. Ástæðan fyrir því að við erum hérna er fólkið og við virðumst vera stöðugt að hitta fólk,“ segir Robert. Eru þetta þá listamenn? „Mestmegnis listamenn, ég held að við þekkjum alla listamennina í Reykjavík,“ segir Anne og Robert bætir við: „Á ákveðnum aldri.“ Geta ekki vanist birtunni á sumrin „Við höfum ekkert ferðast. Í hvert skipti sem við komum þá segjumst við ætla að keyra um landið,“ segir Anne þegar blaðamaður spyr hvort þau hjónin hafi eitthvað ferðast um Ísland. „Málið er að við komum vanalega hingað í október og erum fram í maí. Þá er svo erfitt að keyra um landið. Einhvern daginn komum við hingað að sumri til og ferðumst þá,“ segir Robert. Þegar þau hjónin eru ekki hérlendis þá búa þau í húsi sínu í Ann Arbor í Michigan-ríki Bandaríkjanna. Anne hefur búið og starfað víða í Bandaríkjunum og Kanada, þar á meðal í New York, Atlanta, Montreal og Ann Arbor.Vísir/Magnús Jochum „Við reyndum að vera hérna að sumri til en það er alltof bjart. Ég get ekki vanist því meðan myrkrið hefur engin áhrif á mig. Maður er vanur þessu ef maður elst upp hérna en fyrir okkur er þetta algjört sjokk,“ segir Anne. Þið tvö hafið unnið mikið saman, hvernig er ykkar samstarf? „Við vinnum mest saman með því að rúnta um í bílnum,“ segir Anne. „Þú skalt gefa honum svarið sem þér datt í hug í Kaliforníu um árið,“ bætir Robert við. „Við erum með ólíkan hugsanagang. Ég þarf að skjóta einni ör beint á markið, hann skýtur örvum allan daginn og hittir aldrei á markið. Þannig vinnum við saman,“ segir Anne að lokum. Þá var hálftími liðinn, spurningarnar orðnar þó nokkuð fleiri en þrjár og kominn tími á að blaðamaður kveddi. Dagskráin var þétt hjá þeim hjónum þann daginn og þau þurftu smá hvíld þar til næsti gestur kæmi, kanadíski sendiherrann á Íslandi.
Bókmenntir Kanada Nóbelsverðlaun Höfundatal Myndlist Reykjavík Innflytjendamál Mest lesið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Fleiri fréttir Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira