Sport

Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfir­vinnu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gæti þurft að endurskoða agareglur landsliðsins eftir síðasta verkefni.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gæti þurft að endurskoða agareglur landsliðsins eftir síðasta verkefni. vísir/Anton

Frétt dagsins um agabrot leikmanna karlalandsliðsins eru í brennidepli í Besta sætinu í dag.

Samkvæmt því litla sem komið hefur frá KSÍ vegna málsins er búið að taka á því og afleiðingarnar engar.

Íþróttadeild hefur boðið Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara að ræða málið en hann ætlar ekki að gera það strax. Hvort hann gerir það síðar verður að koma í ljós. Besta sætið er á því að KSÍ hefði verið í lófa lagið að tækla málið með stæl í dag og halda svo áfram.

Spennan er rafmögnuð fyrir leiki morgundagsins í Bestu deild karla. Fram og KR spila upp á annað sætið og svo eru rosalegir leikir í botnbaráttunni.

Ómögulegt er að spá í hvernig liðin mæta til leiks eftir þriggja vikna frí.

Enski boltinn hefst á ný í fyrramálið með leik Arsenal og Leeds. Stórleikurinn er svo á sunnudag er Liverpool tekur á móti Man. City. Fyrsti leikur City eftir stóra dóminn á dögunum og City má búast við erfiðum móttökum.

Besta sætið er sem fyrr aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×