Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 11. október 2026 12:00 Katrín Oddsdóttir er lögmaður. vísir/arnar Mótmæli gegn sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði fara samtímis fram þar og á Austurvelli í dag. Lögmaður segir stefna í fjölmenna fundi enda mikið hitamál fyrir austan og telur hún mikla annmarka á leyfisveitingum.
Mótmælin hefjast klukkan þrjú í báðum landshlutum. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stendur að þeim en þeirra á meðal má nefna Landvernd, félög sem berjast fyrir villta laxastofninum á Íslandi, og Vá, félag um vernd fjarðar. Katrín Oddsdóttir lögmaður er ein þeirra sem standa að mótmælunum. „Ég trúi því að það sé mjög, mjög mikilvæg stund í íslenskri náttúruverndarsögu akkúrat núna og að það sé ákaflega mikilvægt að við sjáum sem flesta á báðum stöðum til að reyna að sporna við því að það verði nokkurn tímann sjókvíaeldi á Seyðisfirði.“ Hún segir verulega annmarka á leyfisveitingum. „Það hefur ekki áður gerst að við sjáum að veitt séu leyfi til sjókvíaeldis á stað þar sem svona afgerandi meirihluti heimamanna vill ekki sjá slíkt eldi. Það eru verulegir annmarkar á þessum leyfisveitingum, tel ég sem lögfræðingur, sem við höfum séð. Þetta er búið að vera lengi í gangi og það er með miklum ólíkindum að allir valdhafar sem sagt hafa fyrir kosningar að þeir vilji standa með heimamönnum og tryggja að það verði ekki sett þarna sjókvíaeldi gegn vilja þeirra telji sig núna algjörlega ráðalausa gegn þessu máli.“ „Við erum með fyrirtæki sem heitir Kaldvík sem virðist vera í einhvers konar dauðateygjum rekstrarlega sem fær þessi leyfi sem eru gríðarleg verðmæti. Þetta lítur bara út fyrir að vera ein stór keðja mistaka og það verður að vinda ofan af þessu strax.“ Katrín segir von á mikilli þátttöku í dag. „Ég veit að Seyðfirðingarnir ætla að vera með gjörning sín megin og honum verður vonandi varpað beint á skjá á Austurvelli ef allt gengur upp. Þannig að við lítum á Austurvallarfundinn sem samstöðufund með Seyðfirðingum þannig að þeir finni að þeir verði ekki skildir eftir einir gagnvart þessu ofríki sem er í málinu gegn þeim og ég vona bara að við getum sýnt líka stjórnvöldum fram á að það verður að fara eftir lögum í landinu og það verður að rannsaka mál þangað til þau eru algjörlega í lagi en ekki veita leyfi þegar algjörlega ljóst er að það eru fjölmargar forsendur sem liggja fullkomlega órannsakaðar bak við leyfin.“
Sjókvíaeldi Múlaþing Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira