Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar 8. október 2026 12:02 Ef það sem ég lýsi hér væri undantekning mætti afgreiða þessi skrif sem óþarfa nöldur. En ég hef fylgst með vísindafréttum RÚV árum saman og hika ekki við að segja að vinnubrögð af þessu tagi séu þar miklu frekar regla en hitt. Helsta undantekningin er umfjöllun þar sem rætt er við innlenda sérfræðinga með raunverulega sérþekkingu, sem vita hvað þeir eru að tala um, til dæmis í jarðfræði.Í fyrradag, 6. september, birtist þessi frétt á RÚV, um Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði (henni hefur verið breytt verulega frá upprunalega textanum, sem ég set hér fyrir neðan). Ég hef enga sérþekkingu á eðlisfræði, en mér fannst sumt í fréttinni hljóma furðulega. Ég bað því Köttinn (ChatGPT) að lesa þetta yfir og benda á hugsanlegar villur. Það tók mínútu að fá þetta svar: „Nokkur atriði þarf að leiðrétta: Rúmmetri á að vera rúmkílómetri — milljarður rúmmetra. Ljósnemarnir nema ljós frá hlöðnum ögnum sem myndast þegar fiseindir víxlverka við ísinn. IceCube IceCube-tilrauninni lauk ekki 2011. Byggingu stöðvarinnar lauk í desember 2010 og fullur rekstur hófst í maí 2011. IceCube Þekktar fiseindir skýra ekki stóran hluta hulduefnis. Þær hafa örlítinn massa, en eiginleikar þeirra samræmast ekki því að þær séu meginuppistaða þess. All Things Neutrino Lýsingin á myndun svarthola er villandi. Fiseindaflóð fylgir kjarnahruni massamikilla stjarna, en leifarnar geta orðið nifteindastjarna eða svarthol. Ég tek út hitatöluna og einfalda orsakasamhengið. IceCube Nýjungin var háorkufiseindastjörnufræði. Fiseindir frá sprengistjörnu utan sólkerfisins höfðu þegar mælst 1987; tímamót IceCube árið 2013 snerust um mun orkumeiri fiseindir úr geimnum. Einnig á enska heitið að vera neutrinos." Ég sendi fréttastjóra RÚV, Heiðari Erni Sigurfinnssyni, tölvupóst þar sem ég benti á hversu vond þessi frétt væri, lét fylgja með ofangreindan lista frá Kettinum og sagði hvaðan hann væri. Skömmu síðar var fréttin uppfærð og þessar villur leiðréttar (nema villan um hitatölurnar, þar sem enn er talað um hundruð milljóna, en ekki hundruð milljarða).Ég lagði síðan nokkrar viðbótarspurningar fyrir Köttinn og fékk nánari skýringar á ýmsum spurningum sem vöknuðu við lestur fréttarinnar. Þann texta sendi ég ekki til RÚV, reiknaði í einfeldni minni með að þessi ábending væri nóg til að viðkomandi notaði sér gervigreind til að laga fréttina almennilega. Það var greinilega of mikil bjartsýni ...Ég bað svo gervigreindina Claude að lesa yfir setninguna um myndun svarthola í boxinu "Hvað er fiseind" í fréttinni, og fékk þá eftirfarandi: "Það sem er rangt eða villandi: Svarthol sendir ekki frá sér fiseindir. Flóðið verður við sjálft kjarnahrunið, þegar nifteindastjarna eða svarthol myndast, en kemur ekki frá svartholinu eftir á. Oftast verður nifteindastjarna til, ekki svarthol. Hitastigið er of lágt. Nokkur hundruð milljón gráður eiga við um fyrri brunastig stjörnunnar, til dæmis helíum- og kolefnisbruna. Þegar járnkjarninn hrynur er hitinn tugir milljarða gráða eða meira. Röðin er röng. Kjarninn „kólnar ekki á ný og fellur svo saman“. Hann hrynur vegna þess að járn gefur ekki orku við samruna, svo þrýstingurinn undir ytri lögum stjörnunnar dugar ekki lengur. Fiseindirnar bera síðan orku burt og kæla nýmyndaða kjarnann eftir hrunið." Í gær var svo frétt um nóbelsverðlaunin í efnafræði, sem ég bað Claude að lesa yfir, og fékk þetta svar: "Hvað er rangt eða villandi „Aðferð til að aðskilja sameindir“ er rangt. Verðlaunin eru ekki fyrir aðskilnað spegilmynda heldur fyrir að stýra því hvort formið myndast í efnahvarfi og að magna upp lítinn mun. Aðskilnaður er allt annað og eldra viðfangsefni. Kagan er sagður hafa sýnt að hægt sé að stýra því hvor spegilmyndin verði ofan á. Þetta er of almennt, og að stýra hvarfinu með hvötum var þegar viðurkennt með Nóbelsverðlaununum 2001 (Knowles, Noyori, Sharpless). Framlag Kagans núna er nákvæmara og snjallara: ólínuleg áhrif. Þú myndir búast við að hvati sem er t.d. 50% „hreinn“ gefi afurð sem er 50% hrein. Kagan sýndi að þetta er oft ekki raunin. Hvati sem er aðeins að hluta hreinn getur gefið mun hreinni afurð, og stundum öfugt. Textinn minnist ekki á þetta. „Leystu gátuna um hvers vegna eitt form birtist í náttúrunni“ er oftúlkun. Soai sýndi fram á að þetta geti gerst, en það er ekki sannað að þannig hafi lífið orðið einhent. Réttara er að segja að hann hafi sýnt hvernig það gæti hafa gerst. Lyfjaframleiðsla er gerð að aðalatriði. Hún er vissulega mikilvæg afleiðing af ósamhverfri efnasmíði almennt, en uppgötvun Soais er fyrst og fremst grundvallarvísindi. Fréttir um verðlaunin nefna lyf, bragðefni og ilmefni sem svið þar sem hendni skiptir máli. Textinn eignar Soai hins vegar of beint notagildi í lyfjagerð." Ég nennti ekki að skrifa fréttastjóranum aftur ... Fréttastofa RÚV hefur á undanförnum árum sætt mikilli gagnrýni fyrir hlutdrægni í tilteknum umdeildum málaflokkum, og ég tel þá gagnrýni oft hafa verið réttmæta. Hér er þó ekki um neitt slíkt að ræða, því þær vísindafréttir sem hér er fjallað um snúast um óumdeildar staðreyndir. Það er óverjandi metnaðarleysi að skrifa endalausar fréttir sem bókstaflega eru rangar, hvað þá í mörgum aðalatriðum. Á fréttastofu RÚV starfa um 80 manns samkvæmt þessari síðu, þar af yfir 60 fréttamenn. Samt virðist engin tilraun hafa verið gerð til að gefa fréttafólki færi á að sérhæfa sig í mikilvægum málaflokkum, svo það geti skrifað skammlausar fréttir um þá. Ég tel vísindi vera slíkan málaflokk á ríkisfjölmiðli og það er RÚV til skammar hversu miklu betur Vísir stendur að slíkri umfjöllun. Það er líka oft sláandi hversu lítinn skilning sum þeirra sem skrifa á RÚV virðast hafa á grundvallaratriðum annarra stórra málaflokka, svo sem lögfræði og réttarkerfisins, að ekki sé minnst á þá þekkingu sem þarf til að stunda gagnrýna umfjöllun um dómstóla, sem ekki er vanþörf á. Sama gildir um fréttir af bandarískum stjórnmálum þar sem skrifin benda oft til þess að viðkomandi lesi varla meira en fyrirsagnir stærstu þarlendra miðla, hvað þá hafi sæmilega þekkingu á málunum. Ekki er heldur hægt að minnast ógrátandi á fréttaflutning um hluti sem byggjast á tölfræði, þar sem skilningurinn á takmörkunum slíkra fræða er yfirleitt við frostmark. Þetta hefur verið viðvarandi ástand lengi á fréttastofu RÚV, svo ljóst er það er ekki stefna núverandi fréttastjóra að setja metnað í fréttamennskuna, eða byggja upp getu til að skrifa vandaðar fréttir um málaflokka sem mikið er fjallað um. Þegar slíkt fólk hefur verið við stjórnvölinn lengi er ekki hægt að laga hlutina með samtali einu saman og frómum óskum um úrbætur. Þess vegna tel ég að yfirstjórn RÚV þurfi að ráða í staðinn manneskju með metnað og getu til að gera fréttastofuna að því sem hún ætti að geta orðið með allan þennan mannafla. Höfundur er stærðfræðingur. PS. Hér er upprunalegur texti fréttarinnar um eðlisfræðiverðlaunin: Nóbelsverðlaunahafi í eðlisfræði, Francis Halzen, er sagður hafa lagt grunn að glænýrri tegund stjarnfræði með því að nota ís frá Suðurskautslandinu til að nema fiseindir: dularfullar öreindir sem m.a. eiga þátt í myndun svarthola. Francis Halzen hefur hlotið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 2026. Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að Halzen hafi lagt grunn að glænýrri tegund stjörnufræði með því að nota jökulís frá Suðurskautslandinu til að nema fiseindir. Halzen kynnti fyrst hugmyndir sínar um að nema fiseindir á Suðurskautslandinu árið 1988. Hann átti hugmyndina að Ice-Cube-fiseindaathugunarstöðinni: rúmmetra af ís sem búinn er ljósnemum sem hjálpa vísindamönnum að nema fiseindir. Hvað er fiseind? Fiseindir (e. neurinos) teljast til öreinda. Samkvæmt Vísindavefnum hafa fiseindir lengi þótt mjög dularfullar. Þær víxlverka mjög lítið við annað efni og hafa löngum verið taldar hafa nær engan kyrrstöðumassa. Þegar svarthol myndast fer flóð fiseinda út í geiminn. Þegar hitinn hefur náð nokkur hundruð milljón gráðum á selsíus sendir kjarninn frá sér mikinn orkuskammt; eins konar flóð af fiseindum, kólnar á ný og fellur saman. Talið er að fiseindir eigi stóran þátt í hulduefni sem stjarnvísindamenn hafa fundið vísbendingar um úti í geimnum. IceCube-tilrauninni, sem Halzen átti frumkvæði að, lauk formlega árið 2011. Nokkrum árum síðar birtu vísindamenn rannsóknarniðurstöður um uppgötvun fiseinda sem áttu uppruna sinn langt utan sólkerfisins. Það segir Nóbelsnefndin hafa orðið til þess að leitin að uppsprettu fiseinda í alheiminum gat hafist af fullum krafti. „Francis Halzen hefur stýrt alþjóðlegu teymi vísindamanna og verkfræðinga sem hefur fært okkur frábært rannsóknartæki. Þrautseigja hans og vísindaleg framsýni hafa rutt brautina fyrir nýja tegund stjörnufræði,“ er haft eftir Mark Pearce, formanni Nóbelsnefndarinnar í eðlisfræði, í fréttatilkynningu vegna verðlaunanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Steingrímsson Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Sjá meira
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar