Innlent

Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“

Kjartan Kjartansson og Telma Tómasson skrifa
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir engan samningavilja að finna hjá atvinnurekendum.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir engan samningavilja að finna hjá atvinnurekendum. Vísir/Anton Brink

Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Útspil stjórnvalda sé gott en atvinnurekendur þurfi að viðurkenna stöðu stórra hópa innan VR.

Innan við sólarhringur er nú þar til frestur til þess að segja upp kjarasamningum VR og SA rennur út. VR hefur boðað að samningum verði sagt upp og að samkomulag sem breiðfylking stéttarfélaga gerði við atvinnurekendur í gærkvöldi breyti engu fyrir félagið.

Engar viðræður eiga sér nú stað á milli VR og SA og segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, stöðuna grafalvarlega.

„Við skynjum engan samningsvilja hjá Samtökum atvinnulífsins og það lítur út fyrir það að þetta sé á leiðinni inn í einhvers konar blindgötu,“ segir hún.

Á meðal þess sem liðkaði fyrir samkomulagi annarra stéttarfélaga við VR í gær var innlegg ríkisstjórnarinnar sem enn hefur ekki verið kynnt opinberlega. Halla segir útspilið mikilvægt. Afstaða félagsins hafi þó verið sú að samningarnir snerust ekki eingöngu um framlag ríkisins.

„Ef hugmyndin er að hér leggist allir á árarnar þurfum við líka að finna það að þeir aðilar sem við sömdum við síðast og ætluðu að gera ákveðna hluti, að þeir ætli að leggjast á árarnar með okkur.“

Samninganefnd VR mætti lausnamiðuð og með hóflegar væntingar til viðræðna, að sögn Höllu. Hún hafi einnig komið með óskir um að staða stórra hópa í félaginu væri viðurkennd á einhvern hátt.

„Það gerir forsætisráðherra með sínu útspili en við þurfum að fá þessa viðurkenningu með einhverju móti frá Samtökum atvinnulífsins,“ segir formaðurinn.

Stjórnarfundur verður haldinn hjá VR síðdegis og segist Halla gera ráð fyrir að aðildarfélögin kalli sína hópa einnig saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×