Íslenski boltinn

Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrir­komu­lagi Ís­lands­mótsins sé breytt

Andri Broddason skrifar
Framkvæmdastjóri KA segir flókið að breyta Íslandsmótinu í fótbolta.
Framkvæmdastjóri KA segir flókið að breyta Íslandsmótinu í fótbolta. Anton/Vísir

Mikið hefur verið rætt um hvernig leikjafyrirkomulag Bestu deildarinnar á að vera og virðist hver hafa sína skoðun á málinu. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir málið vera flókið og ekki auðvelt að breyta mótinu.

Sævar birti í dag pistil á fésbókarsíðu sinni þar sem hann gaf sitt álit á málinu og fór hann yfir mörg praktísk mál sem fylgja efstu deildinni í fótbolta. Mótið hefur verið gagnrýnt þar sem Víkingur er orðinn Íslandsmeistari í Bestu deild karla þegar tveir leikir eru eftir. Það tekur þó langan tíma að klára þessa síðustu leiki vegna rúmlega tveggja vikna landsliðsglugga sem stendur núna yfir.

Hugmyndir hafa komið fram um að losna við þennan landsliðsglugga og einnig til að fjölga liðum í deildinni og fjölga því leikjum. Sævar hefur þó skýrar ástæður bak við allar ákvarðanir sem hafa verið teknar.

Íslandsmótinu var fyrst breytt vegna þess að í samanburði við aðrar deildir í Evrópu var tímabilið á Íslandi stutt og undirbúningstímabilið langt. Tímabilið var rúmlega fimm mánuðir en undirbúningstímabilið var um sex mánuðir fyrir breytingar.

Með nýja fyrirkomulaginu, sem var notað í fyrsta skipti árið 2022, var deildinni skipt í tvennt og byrjuðu landsliðsgluggar að vefjast fyrir mótinu. Ekki er hægt að byrja mótið fyrr til að losna við landsliðsgluggann í september vegna þess að það er annar gluggi í lok mars.

Engin töfralausn til

Hugmyndir hafa vaknað um að leikir ættu að vera spilaðir þéttar á Íslandi en Sævar reiknar dæmið út að sum lið spili nú þegar mjög þétt.

„Ef samantekt mín klikkar ekki þá sýnist mér að Víkingur hafi spilað 24 leiki á 99 dögum í sumar á milli landsleikjaglugga í júní og svo aftur í september. Þetta gerir leik á ca. 4,15 daga fresti yfir þetta tímabil,“ segir í færslu Sævars og er því erfitt að spila þéttar en það.

Lykillinn að mati Sævars er að gera meira úr undirbúningstímabilinu þar sem mótin sem spiluð eru á veturna séu leiðinleg og úrelt. Það er ekki til nein töfralausn en samræður hans við leikmenn benda til að flestum finnist núverandi fyrirkomulag betra en það sem var fyrir árið 2022.

„Málið er mun flóknara en að byrja aðeins fyrr, eða fjölga leikjum yfir sumarið. Ákvörðun um stórar breytingar eins og núna er verið að ræða þarf að skoða út frá mörgum sjónarhornum og er mun flóknara en virðist við fyrstu sýn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×