Erlent

Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Andrew Mountbatten-Windsor hefur verið sviptur titlum sínum en hann var áður prins.
Andrew Mountbatten-Windsor hefur verið sviptur titlum sínum en hann var áður prins. Vísir/EPA

Andrew Mountbatten-Windsor, sem áður var titlaður prins í Bretlandi, hefur lögsótt bresku lögregluna fyrir að ráðast í húsleit á heimili hans. 

Andrew var handtekinn snemma morguns þann 19. febrúar 2026 á heimili sínu í Sandringham-höll. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu á heimili hans til að afla gagna vegna rannsókna á meintum leka prinsins á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Hann höfðar nú mál gegn lögreglunni meðal annars til að fá á hreint hvort heimild lögreglunnar til húsleitar á heimili hans hafi verið í samræmi við lögin. Lögreglan varði nokkrum dögum í að leita á heimili Andrew og á fyrrum heimilum hans. 

The Telegraph greindi fyrst frá og segir þetta í fyrsta skipti síðan árið 1949 sem meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hefur véfengt sakamálarannsókn sem beinist að honum.

Andrew er yngri bróðir Karls Bretakonungs en var sviptur prinstitli sínum og gert að yfirgefa hið sögulega Royal Lodge í grennd við Windsor-kastalann. Ástæðan eru tengsl Andrews við Epstein og ásakanir um að hann hafi brotið gegn Virginíu Giuffre þegar hún var á unglingsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×