Fótbolti

Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ís­raelar með sorgar­bönd

Sindri Sverrisson skrifar
Heimir Hallgrímsson á TSC Arena í Baka Topola í Serbíu, þar sem leikur Írlands við Ísrael fer fram í kvöld.
Heimir Hallgrímsson á TSC Arena í Baka Topola í Serbíu, þar sem leikur Írlands við Ísrael fer fram í kvöld. Getty/Stephen McCarthy

Leikmenn ísraelska landsliðsins munu bera svört sorgarbönd í kvöld þegar þeir mæta Írunum hans Heimis Hallgrímssonar í Þjóðadeildinni í fótbolta. Tveimur ísraelskum blaðamönnum hefur verið bannað að mæta á fund Heimis eftir leikinn.

Dramatíkin hefur verið mikil í kringum leiki Írlands og Ísraels en seinni leikur þjóðanna er í Serbíu í kvöld klukkan 18:45, fyrir luktum dyrum, og er hann sýndur á Viaplay.

Írar voru með sorgarbönd þegar liðin mættust í Ungverjalandi fyrir viku síðan, til minningar um alla sem látið hafa lífið í átökunum á Gaza.

Þetta virðist hafa fengið Ísraelsmenn til þess að sækja um leyfi UEFA til að bera sorgarbönd í kvöld og það leyfi hefur fengist. Samkvæmt ísraelska knattspyrnusambandinu munu leikmenn bera sorgarböndin til minningar um þá sem voru myrtir þegar Hamas og aðrir vígahópar réðust inn í Ísrael 7. október 2023 og drápu yfir 1.200 manns. Yfir 74.000 manns hafa verið myrtir af Ísraelsmönnum á Gaza síðan þá.

Mikill titringur hefur verið vegna leikja Írlands og Ísraels en seinni leikur þeirra er í Serbíu í kvöld. Það er heimaleikur Írlands en Írar treystu sér ekki til að hafa leikinn í Dublin og ákváðu strax í júní að spila frekar á hlutlausum velli. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir mikil læti í tengslum við leikinn.

Blaðamannafundi Heimis í Serbíu í gær var þannig til að mynda slitið snarlega eftir spurningar ísraelskra fjölmiðlamanna sem snerust um nýlegt flugrán milli Dubai og Tel Aviv og meint kynþáttaníð írsks leikmanns í garð leikmanns Ísraels. Heimir reitti Ísraelsmenn til reiði í upphafi landsleikjatarnarinnar með ummælum sínum um að Írar væru „ekki að spila með þjóðarmorði heldur gegn þjóðarmorði“.

UEFA hefur staðfest við Irish Times að tveir ísraelskir blaðamenn fái ekki að mæta á blaðamannafundinn eftir leik í kvöld vegna hegðunar sinnar í gær.

Þegar Írar unnu Ísraelsmenn 3-0 í Ungverjalandi fyrir viku neituðu leikmenn írska liðsins að taka í hendur Ísraelsmanna og lutu höfði á meðan þjóðsöngur þeirra var spilaður. Þeir hefðu kosið að þurfa ekki að spila leikina en neyðast til þess þar sem UEFA hefur ekki bannað Ísraelsmönnum þátttöku í sínum mótum þó að þeim sé bannað að spila heimaleiki sína í Ísrael.

Írska knattspyrnusambandið hafði óskað eftir því við UEFA að þurfa ekki að mæta Ísrael og fjöldi Íra, þar á meðal 160 íþróttamenn, hvatt til sniðgöngu. Einn leikmanna Írlands, markvörðurinn Gavin Bazunu, dró sig úr hópnum vegna leikjanna.

Niðurstaðan varð þó sú að leikirnir færu fram og úr hefur orðið erfiðasta landsleikjatörn sem Heimir og hans menn hafa nokkurn tímann þurft að takast á við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×