Fótbolti

„Mikael Ander­son kom inn með því­líka orku“

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Gunnlaugsson hafði margt að gleðjast yfir í dag en greindi mikil þreytumerki á sínu liði.
Arnar Gunnlaugsson hafði margt að gleðjast yfir í dag en greindi mikil þreytumerki á sínu liði. vísir/Anton

„Þetta var sterkur sigur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir annan 3-0 sigur Íslands í röð. Liðið vann Búlgaríu í dag á Laugardalsvelli og er efst í sínum riðli með sjö stig eftir þrjá leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar.

„Við fengum ekki á okkur mark heldur sem er alltaf mjög sterkt. Miðað við hvað völlurinn bauð okkur upp á í dag þá var þetta leikur mistaka, sleipur völlurinn og erfiðar aðstæður, en við héldum haus. Það voru þreytumerki. Það sást í fjölda tæknifeila sem við áttum. En mörkin voru góð og við héldum markinu hreinu og það var mjög ánægjulegt,“ sagði Arnar en viðtalið við hann má sjá hér að neðan.

Klippa: Viðtal við Arnar eftir sigurinn á Búlgaríu

Ísland hefur nú spilað þrjá leiki á aðeins átta dögum og á enn eftir leikinn við Eistland í Tallinn næsta þriðjudag. Því er eflaust orðið nokkuð um þreytta fætur í hópnum.

„Mér fannst við díla við þetta ágætlega. Andri Lucas fékk 45 mínútur. Það var mjög mikilvægt að hvíla hann en hann er búinn að gefa okkur mikið meira en við þorðum að vona í þessum leikjaglugga. Gylfi fékk 45 mínútur, eða aðeins minna og mjög leiðinlegt að hann hafi meiðst í rifbeininu. En mér fannst við ná að stýra álaginu. Danni [Daníel Leó Grétarsson] var þreyttur eftir Lúxemborg og fékk líka 45 mínútur…

Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku. Hann var geggjaður í leiknum. Hrikalega gaman að sjá hann spila einn af sínum betri landsleikjum. Mér fannst þetta nokkuð vel stýrt hvað mínútufjölda varðar. Hákon Arnar og Orri fyrirliði reyndar búnir að spila allt of mikið en miðað við hvernig þetta hefur þróast er ég nokkuð ánægður með hvernig við náðum að stýra þessu í dag,“ sagði Arnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×