Handbolti

Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnar Róbertsson heldur áfram að raða inn mörkum í Olís deildinni
Gunnar Róbertsson heldur áfram að raða inn mörkum í Olís deildinni Vísir/Anton Brink

Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum í Olís deildinni í kvöld þegar lið hans Valur vann Þór Ak. á Hlíðarenda í miklum markaleik. Lokatölur 40-35 sigur Vals

Gunnar skoraði ellefu af 40 mörkum Vals sem þurfti svo sannarlega á sigri að halda í Olís deildinni eftir fremur erfiða byrjun. Með sigrinum í kvöld fylgdu piltarnir af Hlíðarenda eftir flottum sigri gegn danska úrvalsdeildarliðinu Mors-Thy í miðri viku í Evrópudeildinni. 

Arnór Snær Óskarsson skoraði átta mörk fyrir Val í kvöld og hjá Þórsurum var Bertram Simonsen markahæstur með átta mörk.

Með sigrinum lyftir Valur sér upp í fjórða sæti deildarinnar og er þar með sex stig, fjórum stigum á eftir toppliði Hauka. Þórsarar eru í sjöunda sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×