City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 16:19 Manchester City var opinberlega dæmt sekt í dag vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Refsing hefur ekki verið ákvörðuð. Vísir/getty/Mark Cosgrove Enska úrvalsdeildin sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem sekt Manchester City í máli sem viðkemur brotum á fjármálareglum er staðfest. Málið hafði lekið út á föstudaginn var. Dómur deildarinnar er harðorður í garð félagsins.
Óháð nefnd var skipuð af ensku úrvalsdeildinni sem kvað upp dóm sinn í dag. Manchester City var fundið sekt í öllum ákæruliðum sem tengjast „alvarlegum brotum á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar yfir níu ára tímabil“, líkt og segir í dómi sem birtur var á heimasíðu ensku úrvalsdeildarinnar. Þá var City fundið sekt í meirihluta ákæruatriða er snerta á skorti á samvinnu við rannsókn deildarinnar á málinu. Refsing Manchester City vegna dómsins kemur ekki fram í yfirlýsingu deildarinnar. Félagið hefur til 2. október að áfrýja málinu. Brot á fjármálareglum deildarinnar voru ýmisskonar. Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að því að Manchester City hafi á níu ára tímabili frá 2009/10 til 2017/18: Gert „sýndarsamninga“ (e. sham agreements) (sem gáfu ranga mynd af raunverulegu samkomulagi milli aðila) við fjölda viðskiptafélaga sinna, auk þess að reiða sig á „sýndarsamninga“ við aðra, til að blása upp tekjur félagsins á fölskum forsendum og draga úr kostnaði þess. Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu sinni fyrir endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar. Það braut verulega gegn eyðslumörkum bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA. Við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar braut Manchester City ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni (þrjú af fjórum meintum brotum voru staðfest). Gangur málsins Enska úrvalsdeildin hóf rannsókn á Manchester City í desember árið 2018. Þá var félagið kært vegna málsins í febrúar árið 2023. 42 daga málsmeðferð fór fram árið 2024 og lauk í desember það ár. Síðan þá hefur óháða nefndin farið yfir urmul gagna um málið, um sjö þúsund blaðsíður af skjölum sem við koma máli auk nákvæmra skriflegs vitnisdóms aðila máls. Svik um 900 milljónir og samstilltar tilraunir til að trufla rannsókn Nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að þeirri niðurstöðu að Manchester City hafi gert fjölda sýndarviðskiptasamninga við styrktaraðila sína. Tekjur frá styrktaraðilum voru blásnar upp og Abu Dhabi United Group Investment & Development (ADUG), eigandi Manchester City, greiddi mismuninn. Enn frekari sýndarráðstafanir sem þessar voru gerðar og City hafi búið til svokallað „sýndarhringrásarfyrirkomulag“ með fyrirtækinu Fordham, aðila sem keypti ímyndarrétt leikmanna félagsins, sem var í raun fjármagnað af eigandanum ADUG. Tilgangur þessara áætlana hafi verið að blása tekjur félagsins upp á fölskum forsendum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að dregið hafi verið úr uppgefnum kostnaði um meira en 900 milljónir punda, 144 milljarða króna, til þess að uppfylla fjármálareglur. Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu þess fyrir bæði endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að „með framferði sínu hafi félagið greinilega ætlað að sniðganga reglur ensku úrvalsdeildarinnar“. Með þessu hafi Manchester City komist hjá reglum um fjárhagslega háttvísi. Hefði City gefið réttar tölur upp við eftirlitsaðila hefði það brotið gegn eyðslumörkum, bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA, „um verulega upphæð“. Þá segir einnig að í fjögurra ára rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar hafi Manchester City brotið ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði „gert samstilltar tilraunir til að stöðva og hindra rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar“.
Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Fleiri fréttir Sekt City staðfest: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Sjá meira