Handbolti

Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ

Sindri Sverrisson skrifar
Á myndbandi má sjá að Daníel Berg og Braga sinnaðist eftir leikinn á Ísafirði um helgina.
Á myndbandi má sjá að Daníel Berg og Braga sinnaðist eftir leikinn á Ísafirði um helgina. Skjáskot/Handboltapassinn

Handknattleiksdeild Stjörnunnar sakar þjálfara Harðar á Ísafirði um að hafa veist að þjálfara Stjörnunnar og haft í hótunum við hann, í leik í 3. flokki karla á Ísafirði um helgina.

Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvikið og hefur vísað málinu til HSÍ.

Uppfært kl. 10:05: Hörður hefur svarað ásökunum Stjörnunnar og segir Garðbæinga segja ósatt frá. Hörður hafi einnig vísað hegðun þjálfara Stjörnunnar til HSÍ.

Samkvæmt frétt Handkastsins var það Bragi Rúnar Axelsson, starfsmaður Harðar, sem veittist að Daníel Berg Grétarssyni, þjálfara Stjörnunnar. Miðillinn segist hafa heimildir fyrir því að Bragi hafi hótað Daníel og fjölskyldumeðlimum lífláti.

Á myndbandi frá lokum leiksins má sjá þegar Daníel gengur til Braga og réttir fram höndina. Bragi tekur í höndina en grípur líka um öxl Daníels og virðist svo ýta höndinni í andlit Daníels. Þeim var þá stíað í sundur en þeir létu einhver orð falla.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bragi kemst í fréttirnar fyrir óæskilega hegðun. Fyrir ári var hann úrskurðaður í þriggja leikja bann eftir að hafa misst stjórn á sér á leik Harðar við ÍBV 2 í Powerade-bikarnum í Vestmannaeyjum. Þar kastaði Bragi stól inn á völlinn í átt að leikmönnum Eyjaliðsins eftir leik.

Tilkynningu Stjörnunnar vegna atviksins á Ísafirði um helgina má lesa í heild hér að neðan.

Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvik sem varð síðastliðna helgi í leik Harðar og Stjörnunnar í 3. flokki karla á Ísafirði, þar sem þjálfari Harðar veittist að þjálfara Stjörnunnar og hafði í frammi hótunum við hann.

Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar áréttar að þjálfarar og annað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar skuli ávallt sýna gott fordæmi í samskiptum, hvort sem er utan vallar eða innan.

Málinu verður vísað til HSÍ til þóknanlegrar meðferðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×