Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar 28. september 2026 19:45 Bókasöfn eru alls konar og bjóða upp á margvíslega þjónustu. Á bókasöfnum: - eru öll velkomin og kostar ekkert að koma inn.- hefur fólk aðgengi að ókeypis fræðslu og afþreyingu.- eru í boði fjölbreyttir viðburðir og klúbbastarf þar sem fólk getur kynnst öðrum og myndað ný tengsl.- er lesefni fyrir alla aldurshópa og aðgengi að hljóðbókum og rafbókum í gegnum Rafbókasafnið.- getur fólk aflað sér traustra heimilda og notið við það aðstoðar starfsfólks.- eru öll jöfn og hafa jafnan rétt og aðgengi að upplýsingum. Markmiðið með starfsemi bókasafna er alltaf að efla samfélögin sem þau starfa í, hvort sem það eru skólasamfélög, sveitarfélög eða sérhæfðar rannsóknarstofnanir. Að efla þekkingu, skilning, kunnáttu og lífsgæði, það er hlutverk bókasafna. Þrátt fyrir fjölbreytt hlutverk bókasafna eru bækurnar og lestur eru þó alltaf hjartað í starfseminni, enda eru lestur og læsi ein grunnforsenda þess að geta tekið virkan þátt í lýðræðissamfélagi. Í gegnum lestur dýpkum við þekkingu okkar, bætum orðaforða, lærum að setja okkur í spor annarra og eflum samkennd. Gott aðgengi að fjölbreyttu lesefni skiptir sköpum og á bókasöfnum höfum við aðgengi að lesefni fyrir alla aldurshópa. Bókmenntir og lestur geta verið grunnur að dýmætum samverutíma, hvort sem það er að lesa með barni í háttatímanum, taka þátt í bókaklúbbum eða spjalla við vinnufélaga um bækurnar sem þið eruð að lesa og hlusta á. Í dag er alþjóðlegur dagur UNESCO um upplýsingaaðgengi og í dag halda íslensk bókasöfn Bókasafnsdaginn hátíðlegan. Bókasöfnin eru sameign okkar allra og þar er eitthvað fyrir öll. Fyrir fullorðna og börn, fyrir unga sem aldna. Lestur er bestur – á öllum aldri. Komdu við á þínu bókasafni í dag. Höfundur er formaður Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Bókasöfn Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Bókasöfn eru alls konar og bjóða upp á margvíslega þjónustu. Á bókasöfnum: - eru öll velkomin og kostar ekkert að koma inn.- hefur fólk aðgengi að ókeypis fræðslu og afþreyingu.- eru í boði fjölbreyttir viðburðir og klúbbastarf þar sem fólk getur kynnst öðrum og myndað ný tengsl.- er lesefni fyrir alla aldurshópa og aðgengi að hljóðbókum og rafbókum í gegnum Rafbókasafnið.- getur fólk aflað sér traustra heimilda og notið við það aðstoðar starfsfólks.- eru öll jöfn og hafa jafnan rétt og aðgengi að upplýsingum. Markmiðið með starfsemi bókasafna er alltaf að efla samfélögin sem þau starfa í, hvort sem það eru skólasamfélög, sveitarfélög eða sérhæfðar rannsóknarstofnanir. Að efla þekkingu, skilning, kunnáttu og lífsgæði, það er hlutverk bókasafna. Þrátt fyrir fjölbreytt hlutverk bókasafna eru bækurnar og lestur eru þó alltaf hjartað í starfseminni, enda eru lestur og læsi ein grunnforsenda þess að geta tekið virkan þátt í lýðræðissamfélagi. Í gegnum lestur dýpkum við þekkingu okkar, bætum orðaforða, lærum að setja okkur í spor annarra og eflum samkennd. Gott aðgengi að fjölbreyttu lesefni skiptir sköpum og á bókasöfnum höfum við aðgengi að lesefni fyrir alla aldurshópa. Bókmenntir og lestur geta verið grunnur að dýmætum samverutíma, hvort sem það er að lesa með barni í háttatímanum, taka þátt í bókaklúbbum eða spjalla við vinnufélaga um bækurnar sem þið eruð að lesa og hlusta á. Í dag er alþjóðlegur dagur UNESCO um upplýsingaaðgengi og í dag halda íslensk bókasöfn Bókasafnsdaginn hátíðlegan. Bókasöfnin eru sameign okkar allra og þar er eitthvað fyrir öll. Fyrir fullorðna og börn, fyrir unga sem aldna. Lestur er bestur – á öllum aldri. Komdu við á þínu bókasafni í dag. Höfundur er formaður Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar