Sport

Dag­skráin í dag: Pressu­próf í Lúxem­borg og Bónus deildin fer af stað

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Íslands og Eistlands í fyrstu umferð Þjóðadeildarinnar.
Frá leik Íslands og Eistlands í fyrstu umferð Þjóðadeildarinnar. Anton/Vísir

Upp er runninn risa dagur á sportrásum Sýnar. Íslenska karlalandsliðið heldur í sannkallað pressupróf í Lúxemborg eftir slæma byrjun í Þjóðadeildinni og þá fer Bónus deild kvenna í körfubolta af stað. 

Við hefjum hins vegar leika á stórum leik fyrir undir 21-árs landslið Íslands hér heima fyrir undankeppni EM þar sem að liðið tekur á móti Sviss. Okkar menn verða að vinna til að halda möguleika sínum á sæti á EM lifandi. Leikur Íslands og Sviss verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport og hefst klukkan þrjú. 

Klukkustund seinna, nánar tiltekið klukkan fjögur hefst leikur Moldóvu við frændur okkar frá Færeyjum í Þjóðadeild Evrópu. Sá leikur er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. 

Klukkan sex hefst síðan upphitun á Sýn Sport fyrir leik Lúxemborgar og Íslands í Þjóðadeild UEFA. Sannkallað pressupróf fyrir strákana okkar eftir slæm úrslit á heimavelli í fyrstu umferð gegn Eistlandi. Leikur Íslands og Lúxemborgar hefst klukkan korter í sjö og verður sýndur í opinni dagskrá. Eftir leik tekur við uppgjör með Kjartani Atla Kjartanssyni og sérfræðingum hans í setti. 

Á sama tíma hefst leikur Evrópu- og heimsmeistara Spánar við Króatíu og verður hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. 

Bónus deildin fer af stað

Áhugafólk um íslenskan körfubolta fagnar í dag því Bónus deild kvenna fer af stað í kvöld.

Í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland tekur KR á móti Stjörnunni í leik sem hefst klukkan korter yfir sjö. 

Á sama tíma tekur Ármann á móti Grindavík í beinni á Sýn Sport Ísland 2 og á Sýn Sport Ísland 3 verður sýnt frá leik Tindastóls og Keflavíkur. 

Dagskrá kvöldsins lýkur svo á Lokasókninni þar sem farið verður yfir leiki helgarinnar í NFL deildinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×