Innlent

Slökkvi­lið kallað út í Hafnar­fjörð

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Myndin er úr safni. 
Myndin er úr safni.  Vísir/Anton Brink

Tveir dælubílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og sjúkrabíll hafa verið kallaðir að íbúðarhúsi á Norðurbakka í Hafnarfirði vegna tilkynningar um reyk frá fjölbýlishúsi. 

Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um ljósan reyk koma frá lyftuhúsi en Sigurjón segir að ekki virðist sem að mikil hætta sé á ferð. 

Bíll frá slökkviliðsstöðinni í Hafnarfirði hafi fyrst verið sendur af stað og síðan annar bíll frá Skógarhlíð í Reykjavík til öryggis.

Enn sé óljóst hvort að um eld sé að ræða. 

„Fyrstu bílarnir eru komnir á staðinn og eru að taka stöðuna,“ segir Sigurjón.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×