„Við erum Haukar og við horum alltaf bara á toppinn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. september 2026 21:42 Grétar Ari Guðjónsson gat leyft sér að fagna vel og innilega í leikslok. Vísir/Diego Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka, reyndist hetja liðsins er Haukar unnu dramatískan eins marks sigur í Hafnarfjarðarslagnum gegn FH í Olís-deild karla í kvöld, 34-35.
Haukar voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og leiddu með fimm mörkum þegar um fjórar mínútur voru eftir. FH-ingar náðu þó að minnka muninn niður í eitt mark og fengu tækifæri til að jafna metin á lokasekúndunum, en Grétar Ari rauk út af marklínunni og slökkti í vonum FH-inga. „Þetta var óþarflega tæpt, en mér finnst þessir Hafnarfjarðarslagir alltaf enda í einhverri svona vitleysu. En mér finnst þetta líka bara eðlilegt að þetta endi í svona. Á meðan við sigrum er mér svo sem alveg sama hvernig það gerist,“ sagði Grétar Ari í leikslok. Grétar Ari hefur oft sýnt betri frammistöðu en hann sýndi í fyrri hálfleik í kvöld, en hann kom sterkur inn í seinni hálfleikinn og varð að lokum hetja Hauka. „Markvarslan var ekki frábær í fyrri hálfleik. Hún var bara mjög léleg. En þetta er bara hlutfall líka. Ef þú kastar peningi upp í loftið þá eru helmingslíkur en þú getur samt fengið hann fimm sinnum í röð á sömu hliðina. Mér fannst Jón Þórarinn (markvörður FH) alveg vera að gera vel og mér fannst ég alveg vera að gera vel. Þetta var bara einhvernveginn að leka í gegnum okkur. Það voru fullt af boltum sem við vorum að snerta, en svona er bara lífið í markinu,“ sagði Grétar. „Þarna í lokin. Þetta var náttúrulega bara úrslitaskot og mér fannst hann hoppa svolítið nálægt markinu þannig ég ákvað að hoppa bara út á móti og vonast til að pressan væri það mikil að hann myndi ekki ná að sjá markið og ekki sjá hvað ég væri í raun kominn nálægt honum. Það virkaði í þetta skiptið. En það hefur líka klikkað hundrað sinnum.“ Eftir sigurinn eru Haukar með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir fjórar umferðir. En hvert er liðið að stefna á tímabilinu? „Það er náttúrulega mjög stutt búið af mótinu. En við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn. Það er krafa um það. Hvort það takist eða ekki er svo bara annað mál,“ sagði Grétar. „Við vitum alveg að það er stutt á milli í þessu. Við áttum til dæmis leiki í fyrra þar sem við unnum Val með 11 mörkum og svo töpum við næsta leik á móti ÍBV heima. Við erum að reyna að finna þennan stöðugleika og hingað til hefur það gengið. Við erum áfram á tánum,“ sagði Grétar að lokum.
Olís-deild karla Haukar FH Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum Haukar og við horum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“