Innlent

Hvalveiðivertíðinni lokið

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hvalur 9 rétt fyrir komuna í Reykjavíkurhöfn í dag.
Hvalur 9 rétt fyrir komuna í Reykjavíkurhöfn í dag. Vísir/Agnar

Hvalveiðivertíð Hvals hf. er lokið. Hvalbátarnir eru komnir til hafnar í Reykjavík. Í Hvalfirði er unnið að því að vinna hráefni síðustu hvalanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals. Hvalveiðitímabilið fer jafnan fram yfir sumarmánuðina og lýkur oftast í september eða október. 

„Heildarveiði sumarsins var 93 langreyðar. Veðrið í sumar hefur verið erfitt til hvalveiða þessa 94 daga sem vertíðin stóð. Við höfum til dæmis legið í um 25 daga í Hvalfirði vegna veðurs. Klárað var að taka í land í Hvalfirði í dag veiðarfæri sem notuð eru við hvalveiðar eins og byssur, skutlur, sprengjur og fleira,“ segir í tilkynningunni. 

Hvalveiðiskipin eru komin til hafnar við Ægisgarð þar sem þeir munu liggja fram á næsta sumar.

„Í Hvalfirði er verið að klára að vinna hráefni síðustu hvalanna er landað var. Síðan taka við þrif og annar frágangur,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×