Körfubolti

Martin Her­manns­son byrjar nýtt tíma­bil eins og hann endaði síðasta

Andri Broddason skrifar
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin unnu fyrsta leik tímabilsins í þýsku úrvalsdeildinni.
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin unnu fyrsta leik tímabilsins í þýsku úrvalsdeildinni. Reinaldo Coddou H./Getty Images

Martin Hermannsson var í liði Alba Berlin þegar liðið tók á móti Chemnitz í fyrsta leik þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Leikurinn var jafn í byrjun en Alba Berlin náði að vinna með frábærum lokaleikhluta 89-82.

Athöfn var fyrir leikinn þar sem leikmenn Alba Berlin mættu með bikarinn sem þeir fengu fyrir að verða Þýskalandsmeistarar á síðasta tímabili. Mikil hátíðarhöld voru fyrir leikinn en lið Alba Berlin er staðráðið í því að verja titilinn.

Leikurinn var gríðarlega jafn framan af þar sem hvorugt liðið náði að stinga hitt af. Alba Berlin og Chemnitz skiptust á því að vera með forystu leiksins en gestirnir voru með tveggja stiga forystu í hálfleik.

Þriðji leikhluti hélt áfram að vera jafn en þegar fjórði leikhluti var að byrja var Chemnitz með þriggja stiga forskot og aðeins ein karfa sem skildi liðin að. Alba Berlin sýndi þó meistaratakta í fjórða leikhluta og enduðu á því að vinna 7 stiga sigur 89-82.

Martin Hermannsson spilaði 16 mínútur í leiknum og náði hann að skora ellefu stig og gefa fimm stoðsendingar. Stefan Smith, leikmaður Chemnitz, var stigahæstur í leiknum með 19 stig og liðsfélagi hans, Cobe Williams, var rétt á eftir honum með 18 stig.

Jordan Ford var stigahæstur í liði Alba Berlin með 14 stig og var Justin Bean á eftir honum með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×