Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Telma Tómasson skrifar 16. september 2026 14:38 Haldið er upp á Dag íslenskrar náttúru í dag, sem framkvæmdastjóri Landverndar segir að sé jafnan fagnaðarefni. Í ár séu tilfinningar hins vegar blendnar vegna svikinna loforða stjórnmálamanna meðal annars í uppbyggingu vindorkuvera. Vísir/Anton Brink Haldið er upp á Dag íslenskrar náttúru í dag, sem framkvæmdastjóri Landverndar segir að sé jafnan fagnaðarefni. Í ár séu tilfinningar hins vegar blendnar vegna svikinna loforða stjórnmálamanna í leyfisveitingum fiskeldisfyrirtækja, uppbyggingu vindorkuvera og umdeildra orða umhverfisráðherra, sem sagðist í ræðu í gær telja það „trömpískt“ að sjá ekki fegurð í vindmyllunum. „
Í dag ætlum við að halda upp á Dag íslenskrar náttúru með fögnuði í Tónabíói klukkan fimm þar sem allir eru velkomnir. Það er alltaf fagnaðarefni að halda upp á Dag íslenskrar náttúru, en í dag er það sorgarblandið, út af sviknum loforðum stjórnmálamanna, sem hafa gefið út leyfi fyrir fiskeldi Kaldvíkur í Seyðisfirði. Og svo verð ég nú bara að segja að það er ekki síður sorglegt í dag út af ummælum umhverfisráðherra, sem vill að þjóðin skipti um fegurðarskyn af því það sé „trömpískt“ að sjá ekki fegurðina í eyðileggingu sem vindorkuver eru í náttúrunni. Þessi mikla gleði þarna við vindorkuverið í Vaðöldu í gær var dálítið sérkennileg. Og það var ekki Dagur íslenskrar náttúru í gær,“ segir Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Má ekki verða siðferðisuppnám Þarna vísar Björg Eva í orð Jóhanns Páls Jóhannssonar, loftslags-, orku - og umhverfisráðherra, frá því í gær þegar 14 vindmyllur af 28 voru gangsettar í Vaðöldu. Orðin viðhafði hann í ávarpi sínu, en fréttamaður Vísis spurði ráðherra nánar út í þau að athöfn lokinni. Þú nefndir það í ávarpinu þínu að þér hugnaðist ekki „trömpísk“ orðræða í tengslum við umræður um vindorkuver, hvað áttu við með því? „Ég held að það megi ekki verða siðferðisuppnám í kringum í kringum þetta, mér leiðist stundum þegar er talað eins og vindmyllur séu bara í eðli sínu eitthvað slæmar. Þetta er sú orkuvinnsla sem er í raun, ásamt sólarorkunni, að bjarga heiminum. Þetta gegnir algjöru grundvallarhlutverki í orkuskiptabyltingunni í heiminum. Ég tel að hér á Íslandi sé engin ástæða til að fara að þekja landið okkar með vindorkuverum en ég held að vindmyllur séu að einhverju leyti táknmynd, táknmynd orkuskiptabyltingarinnar í dag. Og þannig þurfum við líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni.“ Venjast þessu bara? „Já,“ sagði Jóhann Páll. Stjórnlaus og beinlínis hættuleg stefna Landvernd hefur mótmælt uppsetningu vindorkuvera á grunni náttúruspjalla. „Það er eitthvað verið að setja þeim skorður en alls ekki nóg og það náttúrulega þýðir ekki að vera að mótmæla vindorkuveri sem er risið og við verðum ekkert að því. En þessi stjórnlausa stefna í þessu og eins og sjókvíaeldinu, hún bara er hættuleg,“ segir Björg Eva. Hún segir mikla áskorun í sjókvíaeldinu, sem skýran lagaramma vanti utan um, og til framtíðar horfi náttúruverndarsamtök til gagnavera í tengslum við þróun gervigreindar, en slík ver eru afar orkufrek. „Við erum að skoða það og höfum sannarlega miklar áhyggjur af því. Það er auðvitað búið að vera mjög skaðlegt að sleppa atvinnugrein eins og sjókvíaeldinu jafn lausu og gert hefur verið. Það hefur þróast bara einhvern veginn af sjálfu sér með engan lagaramma. Það er auðvitað hætta á að það gerist akkúrat það sama með þessi gagnaver. Mér sýnist að þau þurfi helst ekki umhverfismat og að þetta séu bara einhverjar sveitarstjórnir á Blönduósi og Húsavík sem að móta stefnuna um hvernig gagnaver rísa á Íslandi og það er algjörlega óboðlegt. Það kallar á mjög mikla umræðu í þjóðfélaginu um hvert við viljum stefna með þessi gagnaver. Hún hefur ekki farið fram,“ segir Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Landverndarar fagna Á Degi íslenskrar náttúru kemur saman fólk til að fagna náttúrunni og umhverfisvænni framtíð. Landvernd og fleiri samtök standa að viðburðinum sem hefst í Tónabíói klukkan fimm. Allir eru velkomnir en nánar má lesa um viðburðinn hér.
Dagur íslenskrar náttúru Umhverfismál Vindorkuver við Vaðöldu Orkumál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira