„Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 11. september 2026 22:34 Anton Ari Vísir / Ernir Eyjólfsson Breiðablik er Mjólkurbikarmeistari karla eftir 2-1 sigur á Aftureldingu. Anton Ari Einarsson hafði betur í bræðraslagnum í kvöld. „
Það hljómar bara ekkert eðlilega ljúft“ sagði Anton Ari Einarsson markvörður Breiðabliks aðspurður um það hvernig það hljómar að vera Mjólkurbikarmeistari 2026. „Algjör tryllingur að hafa náð að klára bikarinn“ Breiðablik byrjaði leikinn af miklum krafti sem skipti gríðarlega miklu máli. „Auðvitað skipti það öllu máli að koma einhvern veginn og leggja línurnar og reyna að fanga þetta augnablik, það var ekkert eðlilega mikilvægt og mér fannst við gera það bara mjög vel í dag“ „Þetta var klassískur úrslitaleikur með einhvern veginn allt undir og oft á tíðum ekkert fallegt og snérist bara um einhverja baráttu og hvort boltinn skoppaði hingað eða þangað“ Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar er bróðir Antons Ara Einarssonar og voru því bræður að berjast. „Það er auðvitað alveg smá spes að vera spila á móti honum eða Aftureldingu en þegar leikurinn er byrjaður þá skiptir það engu máli. Þá geta þetta verið hvaða lið sem er og maður er bara að einbeita sér að sínu“ „Maður sest niður eftir á og spáir í því og kannski fyrir leikinn líka kannski smá spes en svo er bara upphafs flautið og maður gleymir því“ Anton Ari hefði alltaf valið Aftureldingu í úrslitum ef hann hefði fengið að velja lið til að mæta í úrslitum. „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna, það er ekki spurning“ Breiðablik eru tryggðir inn í Evrópu fyrir næsta tímabil. „Það er náttúrulega bara frábært og jafnvel hægt að segja að mesta snilldin í boltanum er að vera í þessum Evrópukeppnum finnst mér allavega“ „Ég held að það sé það sem muni sitja mest eftir þegar að maður hættir þessu þá eru það ferðirnar allar sem maður átti með liðsfélögum sínum svo það er algjör snilld að vera búnir að tryggja það“ sagði Anton Ari Einarsson.
Breiðablik Fótbolti Mjólkurbikar karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira