„Við náðum einum af þessum stóru í ár“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 11. september 2026 22:00 Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks á hliðarlínunni í kvöld. Guðmundur/Vísir Breiðablik er Mjólkurbikarmeistari karla eftir 2-1 sigur á Aftureldingu. Frábær fyrri hálfleikur skilaði þeim sínum öðrum bikarmeistaratitli hér á Laugardalsvelli í kvöld. Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks ræddi við Vísi eftir leik. „
Ég neita því ekki að þetta er léttir að ákveðnu leyti en ég er bara stoltur af strákunum að hafa klárað þetta“ sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Mjólkurbikarmeistara Breiðabliks eftir sigurinn í kvöld. „Þetta var frábær leikur hjá okkur og þá sérstaklega fyrri hálfleikur en svo var þetta kannski full naumt þarna undir lokin en bara hrós á Aftureldingu líka, þeir eru með frábær lið og stóðu sig vel líka“ Breiðablik réðu lögum og lofum í fyrri hálfleiknum en mættu heldur passívir út í seinni hálfleikinn að mati Ólafs Inga. „Við verðum kannski pínu passívir að einhverju leyti. Við erum kannski að bíða eftir því að leikmenn sofni aðeins á verðinum og ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því, tempóið dettur svolítið niður í leiknum á tímabili og við svolítið föllum með því“ „Þetta mark kemur svo svolítið upp úr engu og þá fá þeir líflínu og von. Við þurfum þá að vinna harðar að að þessu sem er bara partur af fótbolta og við gerðum það mjög vel“ Breiðablik mætti inn í þennan leik með pressuna á sér en Ólafur Ingi vildi þó ekki meina að það hafi gert undirbúning eitthvað mikið erfiðari. „Í rauninni ekki. Það gefur yfirleitt engann fyrirboða um hvernig leikurinn er að fara spilast, við sáum það í fyrra þegar Vestri vann Val. Fyrirfram hefði maður talið að Valur ætti að vera líklegri aðilinn en í einum leik, í bikarúrslitaleik þá vita menn að þetta er oft bara dagsform þannig við pældum lítið sem ekkert í því“ „Þetta snérist bara um okkur sjálfa eins og það gerir alltaf og við vitum bara að ef við gerum okkar þá eru meiri líkur á því að við vinnum leikina“ Breiðablik hafa átt erfiðar vikur í aðdraganda af þessum úrslitaleik. „Þetta hefur náttúrulega verið erfiðar nokkrar vikur hérna. Ágúst var erfiður og vorum meira að leita af því að finna okkur sjálfa“ Framtíð Ólafs Inga Skúlasonar var tíðræð í umræðunni fyrir þennan leik og gengu sumir það langt að kalla þetta úrslitaleik upp á starfið fyrir Ólaf Inga sem segist þó skilja pressuna. „Ég skil hana alveg. Það er alltaf pressa á þjálfara Breiðabliks og ef að menn eru ekki að ná úrslitum þá er þetta kannski bara spurningar sem að hafa rétt á sér“ „Ég hef ekki fundið neitt annað en gríðarlega mikinn stuðning hjá félaginu og það er það sem maður er glaðastur með, fólkið okkar hérna, græni veggurinn og að geta unnið þetta fyrir bæði stuðningsmennina, leikmennina og gera þetta fyrir sjálfan sig og vinna þennan titil er náttúrulega bara risastórt fyrir okkur og frábært“ „Við viljum vera að keppast að því að vinna titla og við náðum einum af þessum stóru í ár“ Breiðablik eru tryggðir inn í Evrópu fyrir næsta tímabil. „Það er bara frábært og geðveikt fyrir félagið því við höfum sýnt það undanfarin ár að við erum góðir í Evrópu“ sagði Ólafur Ingi Skúlason.
Breiðablik Mjólkurbikar karla Fótbolti Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira