Körfubolti

Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jack­son

Aron Guðmundsson skrifar
Enginn þjálfari hefur unnið fleiri NBA meistaratitla en Phil Jackson. Hér gefur hann Kobe Bryant, blessuð sé minning hans, háa fimmu
Enginn þjálfari hefur unnið fleiri NBA meistaratitla en Phil Jackson. Hér gefur hann Kobe Bryant, blessuð sé minning hans, háa fimmu Mynd:AP

Los Angeles Lakers ætlar að reisa styttu af Phil Jack­son, fyrr­verandi þjálfara liðsins, fyrir utan heima­völl sinn. Jack­son gerði Lakers fimm sinnum að NBA meisturum. Hann er sá þjálfari í sögu NBA deildarinnar sem hefur unnið flesta meistara­titla.

Jackson tók í tvígang við þjálfarastöðunni hjá Lakers, fyrst árið 1999 og til ársins 2004 eftir að hann hafði gert lið Chicago Bulls að margföldum meisturum.

Þá tók hann aftur við þjálfarastöðunni árið 2005 og þjálfaði Lakers til ársins 2011. 

Phil Jackson, magnaður þjálfariAP

Jackson er sigursælasti þjálfari NBA deildarinnar frá upphafi með ellefu meistaratitla sem þjálfari. Þá varð hann í tvígang NBA meistari sem leikmaður New York Knicks.

Styttan af Jackson verður afhjúpuð fyrir utan heimavöll Los Angeles Lakers þann 9. apríl á næsta ári og bætist hann þar með í hóp goðsagna hjá félaginu sem hafa fengið af sér styttu. 

Meðal þeirra sem hafa nú þegar hlotið þann heiður eru Kobe Bryant, Kareem Abdul-Jabbar, Magic Johnson og Shaquille O´Neal.

Á fyrri hluta sínum með Lakers liðinu voru Kobe Bryant og Shaquille O´Neal stjörnurnar í meistaraliðunum sem skiluðu þremur NBA titlum í röð. Seinna meir voru það Kobe og Pau Gasol sem skiluðu tveimur meistaratitlum til viðbótar undir stjórn Jackson. 

Michael Jordan og Phil Jackson áttu saman sigursæla tíma hjá Chicago BullsMynd. / Getty Images

Chicago Bulls varð sex sinnum NBA meistari undir stjórn Jackson en þar hefur ekki verið reist stytta af þjálfaranum sigursæla. Lakers því á undan þar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×