Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sindri Sverrisson skrifar 7. september 2026 11:02 Hafþór Júlíus Björnsson og Raul Flores þekkja það núna báðir að eiga heimsmet í réttstöðulyftu. Samsett/Giants LIVE Hafþór Júlíus Björnsson fagnaði sigri á aflraunamóti í troðfullri höll í Birmingham á Englandi um helgina en varð á sama tíma að horfa á eftir ótrúlegu heimsmeti sínu í réttstöðulyftu til ungs Mexíkóa.
Hafþór Júlíus hafði dregið sig úr keppni á mótinu, vegna hnémeiðsla, en ákvað svo að lokum að taka þátt og endaði á að vinna sitt ellefta mót á Giants Live mótaröðinni. Hann er langsigursælastur í sögu mótaraðarinnar sem varð til árið 2009. Engu að síður má segja að sigur „Fjallsins“ hafi verið súrsætur því fyrsta grein mótsins var um leið heimsmeistaramót í réttstöðulyftu, þar sem Mexíkóinn Raul Flores lyfti 511 kg og bætti heimsmet Hafþórs frá því á sama stað fyrir ári síðan, um aðeins eitt kíló. Flores, sem er aðeins 26 ára gamall, hefur bætt sig ofurhratt síðustu misseri en titraði allur og skalf þegar hann hóf öll 511 kg á loft. Hann beið svo eftir merki frá dómaranum, sem reyndar var sjálfur Magnús Ver Magnússon, um að lyftan væri gild áður en út braust mikill fögnuður. View this post on Instagram A post shared by GIANTS LIVE (@giantslivestrongman) Þrátt fyrir meiðsli sín gat Hafþór Júlíus lyft 480 kg í réttstöðulyftunni og þannig endaði hann næstefstur í þeirri grein, og hlaut 11 stig. Hafþór var svo á meðal efstu manna í öllum fimm greinum mótsins og vann á endanum öruggan sigur en hann hlaut samtals 50,5 stig, eða fimm stigum meira en Evans Nana frá Gana sem varð í 2. sæti. Tékkinn Matyás Funiok varð þriðji með 44 stig. Hafþór var aðeins með tveggja stiga forskot á Nana fyrir lokagreinina, steinalyftu, en steig ekki feilspor þar og lyfti hverjum af steinunum fimm með fumlausum hætti á samtals 23,13 sekúndum, eða sex sekúndum skjótar en Nana. View this post on Instagram A post shared by GIANTS LIVE (@giantslivestrongman) Flores virtist hafa sett alla sína orku í réttstöðulyftuna og endaði næstneðstur í heildarstigakeppninni með 20 stig.
Aflraunir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Sjá meira