Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Valur Páll Eiríksson skrifar 6. september 2026 21:18 Eredivisie Telstar v SC Cambuur VELSEN-ZUID - Telstar goalkeeper Ronald Koeman after the equalizing penalty during the Dutch Eredivisie match between Telstar and Cambuur at the BUKO Stadium on September 6, 2026 in Velsen, the Netherlands. OLAF KRAAK / ANP (Photo by ANP via Getty Images) Ronald Koeman yngri, sonur goðsagnarinnar alnafna síns, vakti töluverða athygli í hollenska boltanum í dag.
Koeman yngri er alnafni og sonur goðsagnarinnar Ronald Koeman sem lék við góðan orðstír með Groningen, Ajax, Barcelona, PSV og Feyenoord á sínum ferli. Sá eldri var miðvörður en skoraði haug af mörkum, enda meðal sparkvissari leikmanna Evrópu á meðan hann spilaði. Koeman skoraði mörk úr langskotum, aukaspyrnum og af vítapunktinum. Alls skoraði Koeman eldri 239 mörk á ferlinum, þar af 115 af vítapunktinum, úr 131 vítaspyrnu sem hann tók. Ronald Koeman hætti sem þjálfari hollenska landsliðsins í sumar. Hann var frábær spyrnumaður á sínum tíma og sá yngri er farinn að gera sig gildandi sem vítaskytta.Vísir/Ívar Sonur hans, sem er fæddur í Barcelona árið 1995, virðist hafa erft sparktæknina en hann er orðin vítaskytta liðs síns Telstar í hollensku úrvalsdeildinni. Koeman yngri fékk þó ekki tækifæri til að sanna sig á vítapunktinum fyrr en í fyrra, þegar Telstar var að spila sitt fyrsta tímabil í efstu deild. Þá skoraði hann eitt mark af vítapunktinum. 🚨🇳🇱 𝗛𝗜𝗦𝗧𝗢𝗥𝗬: Telstar's Ronald Koeman Jr. becomes the first ever goalkeeper to score more than one goal in a single Eredivisie game. https://t.co/wtEDp99UZr pic.twitter.com/OjVr7W9inT— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) September 6, 2026 Í dag reyndi svo aftur á kappann, og það tvisvar. Og tvisvar skoraði Koeman af vítapunktinum til að tryggja Telstar 2-2 jafntefli. Telstar er félag Nökkva Þeys Þórissonar en hann gerði liðsfélögum sínum erfitt fyrir er hann fékk rautt spjald eftir aðeins 22 mínútna leik gegn Cambuur á heimavelli. 🤯🇳🇱 𝗜𝗡𝗦𝗔𝗡𝗘: Ronald Koeman Jr plays goalkeeper for Telstar in Eredivisie. He's their penalty taker.Today, he scored 𝗧𝗪𝗜𝗖𝗘 from the spot with his second coming in the 101st minute to earn his team a point. pic.twitter.com/ZBMsXc85Hy— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) September 6, 2026 Gestirnir komust 2-0 yfir í kjölfarið en Koeman skoraði úr víti um miðjan síðari hálfleik og svo aftur á elleftu mínútu uppbótartíma. Hann er fyrsti markvörðurinn í sögunni til að skora tvö mörk í einum og sama leiknum í hollensku úrvalsdeildinni.
Hollenski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira