Hágrét í bílnum með mömmu Sindri Sverrisson skrifar 4. september 2026 23:15 Það leyndi sér ekki hve erfitt Pablo Garcia og mamma hans áttu með að þurfa að kveðja Real Betis. Skjáskot/@elpespunte Tárin streymdu hjá spænska kantmanninum Pablo Garcia og mömmu hans þar sem hún ók honum í burtu frá bækistöðvum Real Betis í vikunni, þegar 14 ára dvöl hans hjá félaginu lauk.
Garcia er aðeins tvítugur en hann æfði fótbolta upp alla yngri flokka hjá Real Betis, alveg frá því að hann var sex ára gamall. Það var því tilfinningarík stund þegar ákveðið var rétt fyrir lok félagaskiptagluggans á þriðjudag að hann yrði seldur til nýliða Racing Santander, fyrir fimm milljónir evra, svo að félagið gæti endurheimt Dani Ceballos frá Real Madrid. „Vonandi fer allt vel. Ég óska ykkur alls hins besta í Meistaradeild Evrópu,“ sagði Garcia út um bílgluggann á leið sinni í burtu frá æfingasvæði Real Betis. Eins og sjá má gátu mæðginin ekki haldið aftur af tárunum. 🟢 Imágenes que duelen, Pablo García abandona la Ciudad Deportiva Luis del Sol entre lágrimas y visiblemente destrozado, acompañado de su madre.El canterano del Real Betis deja atrás la que ha sido su casa durante tantos años. @elpespunte pic.twitter.com/Kqf6sSFfqj— Alexis Halcón (@AlexisHalcon) September 1, 2026 Garcia, sem varð markakóngur EM U19-landsliða í fyrra, skoraði sigurmark Real Betis gegn Valencia fyrir tíu dögum, eftir að hafa komið inná sem varamaður. Hann hefur hins vegar ekki fengið að spila eins mikið og hann vildi fyrir Betis-liðið en pabbi hans segir, samkvæmt spænska miðlinum COPE, að ákvörðunin um að fara hafi verið gríðarlega erfið. „Hafið þið séð drenginn? Hann fór inn í klefa til að sækja dótið sitt og við eigum mjög erfitt núna. En þegar hann verður byrjaður að æfa og spila þá mun hann gefa allt sem hann á. Ég er handviss um að hann mun gleðja stuðningsmenn Racing,“ sagði pabbinn. Pabbinn útskýrði ákvörðunina Spænskir miðlar segja að Real Betis hafi neyðst til að selja leikmann til þess að standast fjárhagsreglur spænsku deildarinnar og geta fengið Ceballos. Hlutirnir gerðust á síðustu stundu. „Þetta kom upp síðdegis og við biðum þar til að allt var klárt. Það var ekki fyrr en mjög seint,“ sagði pabbinn. „Það hefur alltaf verið ljóst að drengurinn kysi, tvítugur að aldri, að spila eins mikið og mögulegt væri. Og við vitum hvaða leikmannahópur er hérna [hjá Real Betis], með svo marga frambærilega leikmenn. Þess vegna vorum við á báðum áttum með að vera áfram í Betis og vera ánægð með þær mínútur sem hann fengi hér eða reyna að finna lausn sem kæmi ferlinum í gang, þar sem hann myndi spila mikið og njóta fótboltans. Það er það sem hann óskar sér.“
Spænski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Sjá meira