Körfubolti

Ó­í­þrótta­manns­lega villan heyrir sögunni til og KKÍ aug­lýsir eftir nöfnum á nýju villurnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
DeAndre Kane og Ragnar Ágústsson að kljást hér í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í vor.
DeAndre Kane og Ragnar Ágústsson að kljást hér í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Vísir/anton brink

Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, hefur gefið út nýjar leikreglur sem taka gildi nú í haust.

Ein af þessum breytingum er að óíþróttamannsleg villa heitir ekki lengur því nafni heldur hefur henni verið skipt upp í annars vegar ,,Disruptive foul" og ,,Flagrant foul". Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá KKÍ.

„Disruptive foul á við um brot sem eru harkalegri en venjuleg villa en þó er það frekar villa sem framkvæmd er af leikmönnum til að stoppa leikinn utan anda körfuboltans án þess þó að vera harkaleg. Ef villan er hins vegar talin harkaleg þá ætti að dæma Flagrant foul - nema auðvitað ef brotið verðskuldar brottrekstrarvillu,“ segir í stöðufærslu sambandsins á Facebook.

KKÍ auglýsir eftir áhugafólki um íslenska tungu til að finna góðar þýðingar á þessum nýju villum sem verða strax notaðar í Bónus-deildunum núna í haust. Hægt er að senda ábendingar á kki@kki.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×