Innlent

Svínum sleppt út í Salt­vík

Oddur Ævar Gunnarsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Frá svínabúi Stjörnugríss á Kjalarnesi þar sem svínum var sleppt í maí.
Frá svínabúi Stjörnugríss á Kjalarnesi þar sem svínum var sleppt í maí. Vísir/Vilhelm

Svínum Stjörnugríss var sleppt út í Saltvík og var lögregla kölluð út að staðnum í morgun.

Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Rannsókn á innbrotinu stendur nú yfir. Geir Gunnar Geirsson forstjóri Stjörnugríss segir að búið sé að ná tökum á ástandinu, búið sé að reka öll svín inn. Von sé á tilkynningu frá fyrirtækinu um málið.

Síðast var brotist inn hjá Stjörnugrís í maí síðastliðnum og svínum sleppt. Skemmdarvargarnir skildu í það skiptið eftir svokallaða stefnuskrá á vettvangi.

Í júní var brotist í Reykjabú og hænum sleppt. Var samskonar yfirlýsing skilin eftir á vettvangi. Í lok júlí var svo brotist inn í Dalsbú og hundruðum minka sleppt út í náttúruna. 

Fréttin verður uppfærð. 


Tengdar fréttir

Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir

Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar.

Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×