Viðskipti innlent

Gos­drykkja­fram­leiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnar­firði

Lovísa Arnardóttir skrifar
Framleiðslan hófst í dag í Hafnarfirði.
Framleiðslan hófst í dag í Hafnarfirði. Aðsend

Ný gosdrykkjaframleiðsla hófst í Hafnarfirði í dag þegar Gosfélagið tók í gagnið nýja framleiðslulínu fyrir Klaka. Í tilkynningu kemur fram að stefnt sé að því að afkastageta verksmiðjunnar verði um 70 milljón lítrar á ári.

Gosfélagið tók yfir sölu og dreifingu á Klaka, Djúsí Klara og fleiri vörum frá Rolf Johansen & Company haustið 2025. Í tilkynningu segir að Klaki og Djúsí Klaki séu drykkir án bragðefna eða með. Þar kemur jafnframt fram að til standi að hefja framleiðslu á fleiri drykkjum þegar á þessu ári.

„Við erum byrjaðir að framleiða og Klaki í dósum sem og Klaki í nýjum og umhverfisvænum plastflöskum fara í sölu í vikunni. Klaki hefur notið vaxandi vinsælda meðal Íslendinga undanfarin ár og með nýju framleiðslulínunni tryggjum við gæði og öryggi vörunnar,“ segir Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins ehf., í tilkynningunni.

Þar segir að Gosfélagið ætli sér að heyja harða samkeppni á gosdrykkjamarkaði hér á landi við þá tvo aðila sem fyrir eru, Ölgerðina og CCEP.

„Framleiðslan á Klaka er bara fyrsta skrefið. Í framtíðinni stefnum við á að bæta við og kynna til sögunnar nýja og spennandi gosdrykki,“ segir Brynjar Freyr.

Gosfélagið var stofnað haustið 2025 og standa Brynjar Freyr Valsteinsson framkvæmdastjóri og Kristján Elvar Guðlaugsson fjármálastjóri ásamt fjárfestunum Ásgeiri Johansen og Lofti Bjarna Gíslasyni að baki rekstrinum.


Tengdar fréttir

Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins

Gosfélagið hefur ráðið Hrafn Davíðsson í stöðu framleiðslustjóra fyrirtækisins. Hrafn kemur til Gosfélagsins frá Össuri. Gosfélagið tók síðasta haust yfir sölu og dreifingu á Klaka og er með sína eigin framleiðslu í undirbúningi.

„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“

Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×